Sími : 5 800 900
Framkvæmd

Göngum í skólann - 2010

24.8.2010

Nær Göngum í skólann-verkefnið yfir einn dag, viku eða mánuð?

Smellið á myndina til að stækkaOktóber er alþjóðlegur skólagöngumánuður - og alþjóðlegi ,,göngum í skólann" dagurinn er miðvikudagurinn 6. október 2010. Nemendum í 50 þátttökulöndunum gefst í októbermánuði kærkomið tækifæri til að ganga meira í skólann. Út af veðuraðstæðum ákvað verkefnisstjórn Göngum í skólann á Íslandi að Göngum í skólann mánuðurinn hérlendis sé september. Göngum í skólann verður sett þann 9. september og því lýkur formlega á alþjóðlega Göngum í skólann deginum 6. október næstkomandi.

Verkefninu er ætlaður heill mánuður af tveimur ástæðum:

  1. Það skapar sveigjanleika. Ógerlegt er að finna einhvern einn dag eða viku fyrir allt landið þar sem örugglega enginn skóli er í fríi.
  2. Þetta gefur tækifæri til að gera gönguferð í skólann að vana; sé gengið í skólann á hverjum degi í heilan mánuð þá verður það hluti af daglegum venjum og maður hættir að fara á bílnum!

Hver og einn skóli getur haft þetta með sínu sniði. Þess vegna verið með Göngum í skólann-átak bara einn dag, eina viku (flestir ganga fyrstu vikuna) eða heilan mánuð.

Göngum í skólann-verkefnið leggur áherslu á að börn læri á umhverfi sitt með því að ganga í skólann.
Við viljum öll að börnum finnist þau vera hluti af umhverfi sínu og læri þannig að bera virðingu fyrir því. Göngum í skólann getur þar haft áhrif og foreldrar og börn eru því hvött til að fara gangandi í skólann, a.m.k. í októbermánuði, og nota um leið tækifærið til að kynnast sínu nánasta umhverfi.

Nota má gönguferðina til að:

  • Kynnast nágrönnunum Kannanir hafa sýnt að fólk sem býr við rólegar götur kynnist nágrönnum sínum betur en fólk sem býr við ys og þys.
  • Læra að bera virðingu fyrir götunum sinni Reglulegar gönguferðir í skólann auka tilfinningu barna fyrir umhverfi sínu og fyrir vikið er líklegra að þau gangi betur um það og geri þannig göturnar betri fyrir alla! Reynslan sýnir að þegar margir eru á ferli um götuna þá hugsar folk betur um garðinn sinn.
  • Finna betri gönguleiðir Gengurðu sömu leið og ekin er í bílnum? Hvernig væri að kanna umhverfið til að sjá hvort til sé betri leið í skólann, forðast umferðargöturnar og fara um hliðargötur og göngustíga í staðinn?
  • Kynnast nágrenninu Mikilvægur þáttur í þroskaferli barna er að þau læri að rata vel í sínu nánasta umhverfi. Það eykur öryggi og er mikilvægt þegar börnin verða síðar ein á ferð.
  • Æfa lífsleikni Notum gönguferðirnar í skólann til að æfa að fara yfir götu, rata í hverfisbúðina eða setja bréf í póstkassann.

Áður en Göngum í skólann hefst

Verkefnið hófst á Íslandi í október árið 2007. Er því verið að halda Göngum í skólann í fjórða sinn hérlendis.

Hér eru nokkrar hugmyndir að skipulagningu Göngum í skólann, þar sem fram koma atriði sem skipuleggjendur í öðrum löndum hafa nýtt sér. Þátttakendur á Íslandi geta væntanlega nýtt sér eitthvað af þessum upplýsingum en hver og einn skipuleggur Göngum í skólann eins og hentar.

Hugmyndir til að nýta við framkvæmd Göngum í skólann:

Fáið sjálfboðaliða

  • Biðjið um sjálfboðaliða úr hópi foreldra.
  • Kynnið átakið á heimasíðu skólans og/eða sendið tilkynningu heim með nemendum. Hægt er að nota veggspjald Göngum í skólann-verkefnisins í kynningarskyni

Breiðum út boðskapinn

  • Veggspjöld Göngum í skólann ættu að hanga upp á bókasöfnum, verslunarmiðstöðvum og öðrum stöðum þar sem margir eru á ferli. Þetta vekur áhuga og hvetur vonandi til þátttöku.

Bjóðið stjórnmálamönnum og gestafyrirlesurum

  • Bjóðið stjórnmálamönnum (borgarstjóra, bæjar/borgarfulltrúum, lögreglustjóra) að taka þátt í göngunni.
  • Fáið fyrirlesara (s.s. lögreglumenn og hjólreiðafólk) til að tala um umferðaröryggi.

Virkjum samfélagið

  • Gaman er að hafa samkeppni á milli bekkja. Þá er hægt að biðja velviljuð fyrirtæki að gefa vinninga svo hægt sé að launa bekkinn/bekkina sem eru með mestu þátttökuna.
  • Ef haldið er upp á mánuðinn/vikuna/daginn með hátíðarhöldum þá má biðja fyrirtæki að gefa drykkjarföng og veitingar.

Fræðum um öryggismál

  • Útvegið efni sem fjallar um umferðaröryggi, einelti, öruggar hjólreiðar o.fl. hjá viðkomandi samtökum og afhendið nemendum.

Gerið leiðirnar í skólann öruggari

  • Fáið lögreglustjórann til liðs við skólann um að auka umferðareftirlit meðan átakið stendur yfir.
  • Fáið sjálfboðaliða til að gæta gangbrauta. Slík gæsla getur orðið hluti af átakinu Virkar og öruggar leiðir í skólann á hverju ári.

Skemmtilegt fyrir börnin!Börn að hreyfa sig, International Walk to chool

  • Gerið gullskó úr gömlum strigaskó með því að mála hann eða skreyta og afhendið hann bekknum sem hefur mestu þátttökuna.
  • Fáið ,,lukkudýr" með í hátíðahöldin.
  • Fáið börnin til að útbúa barmmerki og fleira í tilefni dagsins.                                                                                                                                    

Hvetjið nemendur til að tala um göngum í skólann

  • Fáið yngri börnin til að teikna myndir sem sýna kosti virkra samgangna (s.s. dregur úr loftslagsbreytingum, hreinna loft, aukin hreyfing, betri heilsa og samfélagsvitund).
  • Haldið fund í skólanum til að ræða kosti þess að ganga og hjóla í skólann.
  • Fáið nemendur að hanna borða fyrir Göngum í skólann sem hengja má upp fyrir utan skólann.
  • Ef farið er í göngu einn dag - eða hátíðarhöld haldin í tilefni af átakinu - má fá nemendur til að útbúa spjöld fyrir gönguna. Þau eru frábært myndefni.
  • Hvetja má nemendum til að gera ljóð eða lög um göngu í skólann og þau fá að flytja þau við ákveðin tækifæri.

Bjóðið fjölmiðlum

  • Leitið til fjölmiðla og reynið að fá þá til að segja frá átakinu.

 

Sérstakur göngudagur eða hátíðarhöld

Ef haldinn er sérstakur göngudagur eða hátíðarhöld í tilefni af Göngum í skólann er hægt að gera viðburðinn enn skemmtilegri og eftirminnilegri með góðum undirbúningi.

Börn

  • Í göngunni geta börn verið með spjöld, hatta eða merki í tilefni dagsins. Skrúðganga Go for Green verkefnisins
  • Skipuleggja má leiki í tengslum við gönguna, s.s. boðhlaup eða aðra hreyfileiki.
  • Nemendur vilja kannski kynna nánar af hverju þeim finnst gaman að ganga eða hjóla í skólann. Þá má gefa þeim kost á að fara með ljóðin sín, sýna myndirnar, myndbandið eða hvaða verkefni sem er sem þau hafa unnið í tengslum við verkefnið.

Fullorðnir

  • Taka vel á móti börnunum þegar þau koma inn á skólalóðina.
  • Gefa þeim holla drykki og snarl, sem fengið hefur verið að gjöf frá fyrirtæki í hverfinu eða annars staðar.
  • Taka myndir af viðburðinum, sem síðan eru settar á heimasíðuna, fréttabréfið eða annað. Góða skemmtun!

 

Að Göngum í skólann-verkefninu loknu

     

 Þegar Göngum í skólann mánuðinum lýkur er gott að fara yfir verkefnið með því t.d. að:
  • Birta úrslit keppna eða samkeppna og veita verðlaun.
  • Skipuleggja fleiri sérstaka daga til að hvetja nemendur og starfslið til að ganga eða hjóla í skólann. Eða hefjið átak um virkar og öruggar leiðir í skólann.
  • Fá börnin til að skrifa um það skemmtilegasta sem þau upplifðu í tenglsum við verkefnið eða teikna mynd sem sýnir gildi verkefnisins fyrir þau.




Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica