Sími : 5 800 900
Fréttir

Göngum í skólann - 2008

27.8.2008

„Göngum í skólann“- verkefnið 2008 hefst miðvikudaginn 10. september og lýkur formlega á alþjóðlega „Göngum í skólann“- deginum miðvikudaginn 8. október. Í ár verður lögð áhersla á að börn gangi eða hjóli til og frá skóla.

Markmið verkefnisins eru meðal annars:

  • Hvatning til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.
  • Að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum.
  • Vitundarvakning um hversu „gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf.
  • Vitundarvakning um ferðamáta og umhverfismál.

Verkefnið er alþjóðlegt og á síðasta ári tóku milljónir barna frá fjörutíu og tveimur löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti.

Krakkar í Mýrarhúsaskóla

Krakkar í Mýrarhúsaskóla úti á göngu (2007).



skolatoskuveggspjald2007_copySkólatöskudagar verða svo 22. - 26. september. Iðjuþjálfafélag Íslands stendur á hverju ári fyrir skólatöskudögum víðs vegar um landið og ber átakið yfirskriftina „Létta leiðin er rétta leiðin“. Þessa daga fer fram sérstök fræðsla um mikilvægi þess að skólatöskur séu ekki of stórar né of þungar.

Með því að smella á myndina hér hægra megin má sjá leiðbeiningar um hvernig stilla skuli skólatösku og hvernig sé best að raða í hana. Leiðbeiningarnar opnast sem PDF-skjal í nýjum glugga.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica