Göngum í skólann 2008 í fullum gangi
Nú er tímabil göngum í skólann 2008 hálfnað og verkefnið í fullum gangi.Í ár er metþátttaka, 35 skólar hafa skráð sig til leiks. Þótt úrkoma hafi verið mikil það sem af er tímabilinu hafa nemendur, kennarar og foreldrar ekki látið það á sig fá. Hægt er að sjá lista um þátttökuskóla ef valinn er flipinn þátttakendur hér á síðunni. Margir skólanna gera verkefninu skil á heimasíðu sinni.
Svo eitt dæmi sé tekið gerði Fossvogsskóli úttekt á því hversu margir nemendur komu með eigin vöðvaafli í skólann vikuna 15. - 19. september. Niðurstaðan var að í heildina komu þessa fimm daga að meðaltali 250 nemendur gangandi eða hjólandi á degi hverjum sem er 81% af nemendafjölda skólans. Sannarlega glæsilegt hjá þeim! Sjá nánar á heimasíðu skólans. Myndin sem fylgir fréttinni er af reiðhjólum á lóð Fossvogsskóla.
Við hvetjum þátttakendur til að vera áfram duglega að ganga eða hjóla í skólann og koma því í vana - fyrir heilsuna, umhverfið og umferðaröryggið!
