Löbbum í leikskólann
Samtök um bíllausan lífsstíl og Börnin okkar, samtök foreldrafélaga leikskóla í Reykjavík, standa fyrir átakinu Labbað í leikskólann dagana 14. - 18. september í Reykjavík.
Hugmyndin að átakinu kom upp á síðasta vetri þegar fréttir um svifryksmengun voru hvað tíðastar í fjölmiðlum landsins.
Tilgangurinn er að hvetja foreldra og forráðamenn til þess að ganga eða hjóla með börnunum sínum í leikskólann í stað þess að keyra á bíl, draga þannig úr mengun og umferð í nágrenni leikskóla, fjölga samverustundum foreldra og barna og fá ljómandi góða hreyfingu í kaupbæti.
Átakið fer þannig fram að hver leikskóli skráir sig á labbad.i.leikskolann@gmail.com. Sögur og myndir frá átakinu verða birt á heimasíðum samtakanna auk þess sem þar verður að finna lista yfir alla leikskóla sem taka þátt. Að loknu átakinu fá allir leikskólar send viðurkenningarskjöl frá samtökunum.
Það er von aðstandenda Labbað í leikskólann að átakið verði til þess að vekja athygli á kostum þess að ganga í leikskólann með börnum sínum.
Nánari upplýsingar varðandi átakið má nálgast með tölvupósti á labbad.i.leikskolann@gmail.com eða í s. 868-8590 (Ólöf).
