Hreyfistrætó-heilsunnar vegna!
Í tilefni af alþjóðlegum degi sjúkraþjálfara þann 8.september munu sjúkraþjálfarar á Íslandi, í samvinnu við Grundaskóla á Akranesi, fara af stað með verkefni sem kallast Hreyfistrætó. Verkefnið helst vel í hendur við átakið “ Göngum í skólann” og mun fyrsti “strætóinn” fara af stað þann 16.september með farþegum úr 2.bekk. Nýnæmið er að foreldrar skiptast á að ganga með hóp barna í skólann. Stoppistöðvum verður komið upp á leiðinni í skólann þar sem börnin í eru „tekin upp í.“ Börn sem ganga og hjóla í skólann eru líklegri til að tileinka sér það áfram og gera að lífstíl. Rannsóknir sýna að hreyfing eykur andlega vellíðan, þjálfar hreyfifærni, eykur líkamshreysti og minnkar líkur á ýmsum sjúkdómum.
Markmiðið með Hreyfistrætó er að:
· Efla hreyfingu barna í samneyti við foreldra
· Minnka umferð og mengun í kringum skólann
· Þjálfa barnið í lífsleikni
· Auka sveigjanleika fjölskyldunnar á morgnana
· Auka félagsleg tengsl
Foreldrar gegna lykilhlutverki og geta haft mikil áhrif á hvort barnið fái ráðlagðan dagskammt af hreyfingu.
Lengi býr að fyrstu gerð- ert þú fyrirmynd?
