Sími : 5 800 900
Fréttir

Göngum í skólann 2009

9.9.2009

Göngum í skólann var sett formlega með athöfn í Flóaskóla nú í morgun.

Göngum í Skólann var sett formlega í morgun í Flóaskóla. Við setninguna fluttu ávörp þeir Hafsteinn Pálsson formaður Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra og alþingismaður, Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður á Selfossi og Kristín Sigurðardóttir skólastjóri. Hér til hliðar má sjá nokkrar svipmyndir frá opnuninni.

Þátttaka í verkefninu hefur vaxið ár frá ári. Nú þegar hafa þrjátíu og fjórir skólar skráð sig til leiks, fleiri en nokkru sinni áður, vonumst við til að fleiri bætist í hópinn á meðan verkefnið stendur yfir.

Þátttökuskólarnir eru eins misjafnir eins og þeir eru margir og fjölbreytileiki í því sem skólarnir taka sér fyrir hendur í tengslum við Göngum í skólann. Sem dæmi um nálgun má nefna að Egilsstaðaskóli er með gönguviku þessa vikuna og þar var í gær göngudagur í skólanum með þátttöku nemenda og starfsfólks. Meðan á gönguvikunni stendur fá nemendur og starfsfólk skólans ,,hreyfibók“ þar sem merkt er við hreyfingu dagsins og stig eru gefin eftir magni hreyfingar. Í Grunnskóla Seltjarnarness er tveggja vikna umferðaröryggisátaki að ljúka í lok þessarar viku. Í framhaldi af henni verður keppni milli bekkja þar sem skráð er hversu margir ganga eða hjóla í skólann. Á Siglufirði keppa bekkir skólans þriðja árið í röð um gull, silfur og bronsskóinn fyrir hlutfall nemenda sem ganga eða hjóla í skólann. Í Grundaskóla á Akranesi fara eldri og yngri nemendur saman í göngu þar sem þeir eldri sýna ekki endilega stystu leiðina frá skóla og heim, heldur þá öruggustu. Einhverjir skólar ætla að hefja Göngum í skólann og Norræna skólaíþróttahlaupið samtímis nú í dag. Einnig verða fjölmargir skólar með sérstaka göngudaga á Alþjóðlega Göngum í skólann deginum sem í ár er 9. október.

Hægt er að sjá yfirlit yfir þáttakendur og tengla á viðkomandi skóla ef valinn er flipi um þátttakendur hér á síðunni. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá setningunni.

      
Opnun_Gongum_i_skolann_2009Tveir_035_(Small)  Opnun09_(Small)
 Opnun09_(1)_(Small)  Opnun09_(3)_(Small)
 Opnun09_(4)_(Small)  Opnun09_(5)_(Small)




Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica