Sími : 5 800 900
Fréttir

Göngum í skólann allan ársins hring

18.9.2009

Eftirfarandi grein eftir Ólaf Rafnsson forseta ÍSÍ birtist í Morgunblaðinu miðvikudaginn 16. september síðastliðinn

Alþjóðlega verkefnið Göngum í skólann hvetur til þess að börn og foreldrar nýti virkan samgöngumáta, svo sem göngu eða hjólreiðar, til að ferðast til og frá skóla. Í ár var Göngum í skólann formlega sett miðvikudaginn 9. september og verkefninu lýkur formlega á alþjóðlega Göngum í skólann deginum 9. október n.k.
Markmið verkefnisins eru meðal annars:
* Að hvetja til aukinnar hreyfingar, með því að gera börnin færari um að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.
* Að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum.
* Vitundarvakning um hversu ,,gönguvænt“ nánasta umhverfi er og hvar úrbóta er þörf.
* Vitundarvakning um ferðamáta og umhverfismál.
Á síðasta ári tóku milljónir barna, í yfir fjörutíu löndum víðs vegar um heiminn, þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti.  Ísland er nú að taka þátt í verkefninu í þriðja sinn. Bakhjarlar verkefnisins eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Lýðheilsustöð, Umferðarstofa, Ríkislögreglustjórinn, Menntamálaráðuneytið, Slysavarnafélagið Landsbjörg og Heimili og skóli. 

Heilsusamlegt og vistvænt
Eins og markmið verkefnisins bera með sér eru fjölmörg góð rök fyrir því að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu eða hjólreiðar. Þannig má með einföldum hætti auka hreyfingu í daglegu lífi og njóta þess fjölþætta ávinnings sem því fylgir fyrir heilsu og vellíðan. Til dæmis getur regluleg hreyfing minnkað líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum, sykursýki af tegund 2, offitu, ýmsum stoðkerfisvandamálum og umfram allt veitir hreyfing andlega orku og líkamlegan styrk til að takast á við verkefni daglegs lífs. Mikilvægur liður í því að hvetja börn og unglinga til að nota virkan ferðamáta er að það eykur líkurnar á að þau geri það einnig þegar komið er fram á fullorðinsár.    
Ávinningur þess að velja virkan ferðamáta er ekki aðeins bundinn við einstaklinginn heldur nýtur samfélagið í heild góðs af. Meðal annars geta útgjöld heilbrigðiskerfisins lækkað, loftmengun minnkað auk þess sem draga má úr ýmsum öðrum vandamálum, s.s. slysum, sem fylgja mikilli bílaumferð.
Þægilegur klæðnaður í samræmi við veður getur haft mikið að segja um það hversu viljugt barnið er að ganga í skólann og hreyfa sig almennt í tengslum við skólastarfið. Allir ættu að nota endurskinsmerki, óháð aldri, og þekkja þá þætti sem hafa áhrif á öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda.   
 
Öryggið í fyrirrúmi
Þroski barnsins segir til um það hvenær barnið er tilbúið til að ganga sjálft í skólann.  Mikilvægt er að fullorðnir fylgi yngri börnum á meðan þau eru að læra umferðarreglurnar og auka færni sína í að takast, með öruggum hætti, á við nýtt umhverfi. Til að sameina kraftana geta foreldrar til dæmis skipulagt svonefndan göngustrætó, þ.e. skipst á að fylgja börnum sem búa á sama svæði í skólann. 
Gönguleiðin sjálf ætti að vera eins örugg og kostur er. Umferðarþungi í námunda við skóla er til dæmis algeng ástæða fyrir því að foreldrar telja að öryggi barns sé ógnað og velja því að keyra það í skólann. Við slíkar aðstæður skapast vítahringur; aukin bílaumferð eykur enn á vandann og minnkar líkurnar á að virkur ferðamáti sé valinn.  Auk umferðarþunga og hraðaksturs eru afmörkun gönguleiða, merkingar og lýsing dæmi um þætti sem hafa áhrif á öryggi þeirra. Á heimasíðu Göngum í skólann er gátlisti sem hægt er að nota til að meta hversu ,,gönguvænt” umhverfið er. Sé úrbóta þörf, gefur gátlistinn einnig hugmyndir að úrlausnum. 

Kannanir benda til að um helmingur íslenskra barna og unglinga gangi eða hjóli til og frá skóla. Með samstilltu átaki foreldra, skóla og yfirvalda er mögulegt að fjölga í hópnum.  Göngum í skólann verkefninu er þar ætlað að vera lóð á vogarskálarnar og vonast aðstandendur verkefnisins til að sem flest börn og unglingar noti virkan ferðamáta, með öruggum hætti, sem oftast og þá ekki aðeins meðan á átakinu stendur heldur allan ársins hring.

Frekari upplýsingar um Göngum í skólann, og þá skóla sem taka þátt, eru á heimasíðu verkefnisins, www.gongumiskolann.is.
 

Ólafur Rafnsson forseti
Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands

 



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica