Fréttir
Hjólafærni
- eflir hjólreiðar hjólreiðamanna í umferðinni
Mörg og ólík verkefni eru í gangi sem hægt er að tengja á einn eða annan hátt Göngum í skólann. Eitt þeirra er Hjólafærni átakið sem varð til í samvinnu Landssamtaka hjólreiðamanna, Íslenska fjallahjólaklúbbsins og Álftamýrarskóla
Markmið Hjólafærni er að kenna notkun reiðhjóla til samgangna sem þannig eykur færni og öryggi hjólreiðamannsins sem aftur hvetur til aukinna samgönguhjólreiða. Boðið er uppá kennslu, fyrirlestra og hjóladaga í skolum. Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá Sesselju Traustadóttur sessy1203@gmail.com eða í s. 864 2776. Einnig er meiri upplýsingar að finna hér.
