Sími : 5 800 900
Fréttir

Göngum í skólann í fullum gangi

6.10.2009

Nú er Göngum í skólann verkefnið árið 2009 vel á veg komið. Skólarnir 35 sem skráðir eru til þátttöku hafa tekið þátt með misjöfnum hætti. Hér fylgja nokkrar svipmyndir.

Hér meðfylgjandi má sjá nokkrar myndir sem teknar hafa verið í tilefni Göngum í skólann 2009

 

Krakkarnir í Grunnskóla Djúpavogs hafa tekið virkan þátt í átakinu. Flesta daga hefur verið 100% þátttaka, allir hafa gengið eða hjólað í skólann. Hér fyrir neðan má sjá mynd frá því um daginn. Þann dag voru 22 hjól fyrir utan skólann og því 54% nemenda sem komu hjólandi.

Djúpivogur (1)

 

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá Glerárskóla á Akureyri. Við opnun átaksins hjá þeim komu fulltrúar Rauða krossins og mynduðu nemendur þar sem þeir stóðu í rauðum fatnaði og mynduðu kross á nýja íþróttavellinum við Hamarinn á Akureyri. Að því loknu þreyttu nemendur hið árlega Norræna skólahlaup.

Glerárskóli (1)                           Glerárskóli (9)

 

Nemendur í Hamraskóla í Grafarvogi tóku þátt í Norræna skólahlaupinu setningardag Göngum í skólann 2009. Hér má sjá svipmyndir frá þeim.

 

Hamraskóli (8)    Hamraskóli (2)

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica