Sími : 5 800 900
Fréttir

Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er á föstudaginn

6.10.2009

Föstudaginn 9. október næstkomandi fer Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn fram.

Undanfarin ár hafa skólar í yfir 40 löndum tekið þátt í Alþjóðlega Göngum í skólann deginum. Að þessu sinni er hann haldinn hátíðlegur föstudaginn 9. október. Hér á landi eru 35 skólar skráðir til þátttöku í Göngum í skólann 2009, langflestir þeirra gera eitthvað í tilefni Alþjóðlega dagsins.

 

Hægt er að sjá nánari upplýsingar á heimasíðun Alþjóðasamtakanna sem standa að Göngum í skólann hér. Meðal annars er hægt að sjá lista yfir þátttökuþjóðir í verkefninu hér.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica