Göngum í skólann á Siglufirði
Þriðja árið í röð tóku nemendur yngri deildar Grunnskóla Siglufjarðar þátt í alþjóðlega átakinu Göngum í skólann. Að þessu sinni var sérstakt átak í 10 daga og fylgst var með hvernig nemendur komu í skólann. Þátttaka í átakinu var mjög góð í yngri bekkjunum, að meðaltali um 85%, og á dögunum voru gull-, silfur- og bronsskórnir afhentir við athöfn í íþróttasalnum. Það voru nemendur 5. bekkjar sem stóðu sig allra best að þessu sinni en á hæla þeirra komu nemendur 6. bekkjar, þessir bekkir fengu gullskóna. Nemendur 4. bekkjar og hins sameinaða 2. og 3. bekkjar hlutu silfurskóna og nemendur 1. bekkjar bronsskóinn.
Þó átakinu sé lokið ætla nemendur að vera duglegir og halda áfram að ganga í skólann á meðan veður leyfir.
Hér fyrir neðan má sjá sigurvegarana í keppninni um gullskóinn, 5. bekk með verðlaun sín.

