Sími : 5 800 900
Fréttir

Setning Göngum í skólann á morgun

7.9.2010

Göngum í skólann verður sett formlega í Fagralundi í Kópavogi á morgun miðvikudaginn 8. september  kl. 10.00.2_strakar_b


Í ár tekur Ísland þátt í fjórða skipti í alþjóðlega verkefninu Göngum í skólann. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi. Hér á landi stefnir í metþátttöku í ár. Á alþjóðavísu er göngum í skólann mánuðurinn í október og Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn í ár er 6. október. Hægt er að velja hvort tekið er þátt í Göngum í skólan deginum, mánuðinum eða hluta úr mánuði. Með hliðsjón af veður- og birtuskilyrðum fer Göngum í skólann verkefnið fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur á Alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 6. október.
Þeir sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Menntamálaráðuneytið, Lýðheilsustöð, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Umferðastofa og Landssamtökin Heimili og skóli.

Megin markmið Göngum í skólann eru að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða fara á annan virkan hátt til og frá skóla. Um leið er ætlunin að: Hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Kenna reglur um öryggi á göngu og hjóli. Draga úr umferð við skóla: Draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Betra og hreinna loft og öruggari og friðsælli götur og hverfi.
Stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf. Samfélagsvitund eykst. Hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna: Hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II og stuðlar að streitulosun, betri sjálfsmynd, o.fl.

Hægt er að fá nánari upplýsingar um verkefnið og ýmsar góðar ábendingar á heimasíðu þess www.gongumiskolann.is. Einnig er hægt að hafa samband við Örvar Ólafsson verkefnastjóra hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands með tölvupósti orvar@isi.is eða í s. 514-4000

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica