Sími : 5 800 900
Fréttir

Opnun Göngum í skólann 2010

8.9.2010

Göngum í Skólann var sett formlega í morgun í Fagralundi í Kópavogi af Ögmundi Jónassyni samgöngu- og sveitastjórnarráðherra. Við setninguna fluttu ávörp þær Rannveig Ásgeirsdóttir formaður skólanefndar Kópavogsbæjar og Oddný Sturludóttir formaður Menntaráðs Reykjavíkurborgar.Opnun_hreyfimynd

Í ár tekur Ísland þátt í fjórða skipti í alþjóðlega verkefninu Göngum í Skólann. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka aukist ár frá ári. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn í ár er 6. október. Hægt er að velja hvort tekið er þátt í Göngum í skólan deginum, mánuðinum eða hluta úr mánuði. Hér á landi hófst verkefnið formlega í dag og lýkur því á Alþjóðlega Göngum í skólann deginum.

Þeir sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Lýðheilsustöð, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Umferðastofa og Landssamtökin Heimili og skóli.

Megin markmið verkefnisins eru að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða fara á annan virkan hátt til og frá skóla. Um leið er ætlunin að: Hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Kenna reglur um öryggi á göngu og hjóli.
Draga úr umferð við skóla: Draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Betra og hreinna loft og öruggari og friðsælli götur og hverfi. Stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf. Samfélagsvitund eykst. Hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna: Hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II og stuðlar að streitulosun, betri sjálfsmynd, o.fl.

Þátttaka í verkefninu hefur vaxið ár frá ári. Nú þegar hafa fjörtíu og fimm skólar skráð sig til leiks, fleiri en nokkru sinni áður.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica