Samgönguvika 2010 í fullum gangi

Í ár eru fjölbreyttar ferðavenjur og bætt lífsgæði þema Samgönguviku í Reykjavík.
Að sögn Pálma Freys Randverssonar verkefnastjóra Samgönguviku í Reykjavík er markmiðið að hvetja borgarbúa til að endurskoða ferðavenjur sínar, einnig viljum við skapa umræður um áhrif samgangna á umhverfið og loks hrinda verkefnum í framkvæmd í Samgönguviku,”.
Samgönguvika í Reykjavík hófst í gær fimmtudaginn 16. september og er nú haldin í áttunda sinn. Hún er hluti af Evrópsku samgönguvikunni sem ætlað er að hafa áhrif á ferðaval borgarbúa og stefnu sveitafélaga í samgöngumálum. Vikan var sett í Fellaskóla því Breiðholt verður samgönguhverfi borgarinnar næsta árið.
Margt er á dagskrá Samgönguviku, m.a. verður hjólarein opnuð á Suðurgötu, nýtt göngu- og hjólastígakort gefið út og hjólavefsjá kynnt til sögunnar. Einnig er á dagskrá áhugavert málþing um hvernig ferðamáti hefur áhrif á mótun borgarinnar. Umhverfisráðherra og borgarstjóri Reykjavíkur munu taka til máls á málþinginu.
Nánari upplýsingar Samgönguviku má finna á heimasíðunni www.samgonguvika.is
