Sími : 5 800 900
Fréttir

Göngum í skólann í Árskóla á Sauðárkróki

1.10.2010


Árskóli mun taka þátt í verkefninu Göngum í skólann með eftirfarandi hætti:Arskóli

Allt skólasamfélagið tekur þátt í eina viku  4.-8. október 2010. Markmiðið er að hvetja til aukinnar hreyfingar nemenda og starfsfólks ásamt því að vekja alla til umhugsunar um umferðaröryggi.

Árskóli mun taka þátt í verkefninu Göngum í skólann með eftirfarandi hætti:

Allt skólasamfélagið tekur þátt í eina viku  4.-8. október 2010. Markmiðið er að hvetja til aukinnar hreyfingar nemenda og starfsfólks ásamt því að vekja alla til umhugsunar um umferðaröryggi.

Yngsta stig:

Allir nemendur fara í skipulagða gönguferð um nágrenni skólans í fylgd kennara og lögreglu. Íþróttakennarar munu skipulegga 3 stuttar gönguleiðir í nágrenni skólans og mun hver bekkjardeild fara í stuttan göngutúr ásamt starfsfólki í u.þ.b. 5-10 mín daglega í átaksvikunni. Skipulagt fyrir vikuna, virkja sem flesta starfsmenn.

Mið- og efsta stig

Nemendur eru hvattir til að ganga/hjóla  í og úr skóla á meðan á átakinu stendur. Samkeppni verður um „gullskóinn 2010“ sem veittur verður þeim bekk sem hlutfallsega gengur/hjólar oftast í skólann á þessari viku. Í hverri bekkjarstofu verður dagatal þar sem kennari merkir daglega fjölda nemenda í bekknum sem gengur/hjólar í og úr skóla. Bekkir á miðstigi munu einnig fara í stuttan göngutúr ásamt starfsfólki í u.b.þ. 5 - 10 min daglega í átaksvikunni. 

Allir kennarar eru svo hvattir til að nýta verkefnið á fjölbreyttan hátt með nemendum og eru hvattir til þess að nýta sér þær tillögur og hjálpargögn sem koma fram í handbók Göngum í skólann.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica