Göngum í skólann á Borgarfirði Eystri
Í tengslum við Göngum í skólann verkefnið gengu nemendur í Grunnskóla Borgarfjarðar eystri að Stórurð. Hér til hliðar má sjá hluta af hópnum á leiðinni, jafnframt fylgir hér að neðan frétt frá skólanum um framkvæmd Göngum í skólann 2010 og annað sem því tengist þetta árið. 
Í Grunnskóla Borgarfjarðar eystri eru 16 nemendur í 1.-10. bekk skólaárið 2010-2011. Fjórir nemendur koma með skólabíl í skólann. Vegalengdir fyrir þá sem búa í þorpinu eru ekki miklar og koma þeir nemendur ýmist gangandi eða á hjóli. Nemendum í þorpinu er ekki keyrt í skólann.
Gönguferð skólans nú í haust var að þessu sinni í Stórurð. Fengum við dásamlegt veður í ferðinni sem gerði góðan dag enn ánægjulegri. Allir nemendur skólans mættu í gönguna og fóru létt með þess löngu gönguferð enda nemendur fjallagarpar miklir. Ferðin sjálf tók tæpar 8 klst. og gengum við 16 km. Ekki var laust við að skólastjóri væri með smá hnút í maganum áður en lagt var af stað, veltandi því fyrir sér að gangan væri full löng fyrir nemanda í 1. bekk. En hnúturinn í maga hvarf fljótt því sú 6 ára gaf þeim eldri lítið eftir í gönguferðinni. Hér má sjá svipmyndir úr ferðinni.
Íþrótta og leikjamótið Bogarfjarðarhreysti var haldið í annað sinn í Grunnskóla Borgarfjarðar þann 16. september. Mótið var í umsjón nemenda í 7.-8. bekk.
Skólaár 2009-2010 var mótið haldið að vori en nú var ákveðið að hafa það í tengslum við Göngum í skólann verkefnið.
Foreldrar og systkini kom í heimsókn og tóku þátt í mótinu með okkur og var yngsti þátttakandinn tæplega 3 mánaða. Eftir að hafa leikið okkur í Sparkhöllinni (yfirbyggður grasvöllur) í klukkustund var haldið niður í skóla þar sem boðið var upp á ávexti og grænmeti.
Viðurkenningar sem nemendur í 7.-8. bekk höfðu útbúið voru veittar og að lokum var bikarinn afhentur en hann féll í hlut foreldra og kennara að þessu sinni. Þess má geta að við erum skóli á grænni grein og stefnum á Grænfánann. Það er því vel við hæfi að bikarinn skuli vera heimatilbúinn en hann samanstendur af mjólkurfernum klæddum með álpappír og skreyttur. Sjá myndir hér.
Nú fer verkefninu “Göngum í skólann” senn að ljúka, nemendur eru þó áfram hvattir til þess að koma gangandi í skólann. Lokadagur verkefnisins í Grunn- og leikskóla Borgarfjarðar verður á miðvikdag eða fimmtudag en það ræðst af veðri og við bjóðum foreldrum og systkinum að ganga með okkur eins og í fyrra. Nemendur lögðu til að gönguferðin sjálf yrði að þessu sinni um þorpið og nefndu sérstaklega Álfaborgina. Við munum því leggja leið okkar í Álfaborgina nú í vikunni og á leiðinni stoppum við á völdum stöðum en þar munu væntanlegir þátttakendur í Stóru upplestrarkeppninni og keppendur frá síðasta skólaári lesa nokkrar borgfirskar álfasögur.
Eftir gönguna borða allir saman en eftir málsverðinn verður öllum boðið að horfa á upptöku af leikritinu Álfaborgin eftir þær Kristínu og Sigríði Eyjólfsdætur sem Leikfélagið Vaka á Borgarfirði sýndi árið 1995.
