Alþjóðlegi göngum í skólann dagurinn
Í ár hefur metþátttaka verið í verkefninu hér á landi, alls skráðu 52 skólar sig til leiks. Hér fyrir neðan er mynd af hluta nemenda í Snælandsskóla í Kópavogi ásamt skólastjóranum Hönnu Hjartardóttur og Kristínu Lilju Friðriksdóttur starfsmann ÍSÍ. Er myndin tekin fyrr í dag þegar þau fengu afhenta litla gjöf fyrir þátttöku í verkefninu. Þeir sem að Göngum í skólann standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Lýðheilsustöð, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Umferðastofa og Landssamtökin Heimili og skóli.
Megin markmið Göngum í skólann eru að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða fara á annan virkan hátt til og frá skóla. Um leið er ætlunin að: Hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Kenna reglur um öryggi á göngu og hjóli. Draga úr umferð við skóla: Draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Betra og hreinna loft og öruggari og friðsælli götur og hverfi. Stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf. Hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna: Hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II og stuðlar að streitulosun, betri sjálfsmynd, o.fl.
