Fréttatilkynning frá Grunnskólanum á Hólmavík

Í dag miðvikudaginn 6. október er alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn haldinn hátíðlegur víða um heim. Nemendur og starfsfólk Grunnskólans á Hólmavík fór í sameiginlega gönguferð um Hólmavík og gengu við fjörugan trommuslátt og sungu hin ýmsu lög í rigningunni. Það var frábært að sjá flottu skiltin, fánana, borðana og hristurnar sem krakkarnir höfðu búið til og báru í göngunni. Það voru eingöngu jákvæðir og uppbyggjandi baráttusöngvar og skilti sem heyrðust og sáust á Hólmavík í dag. Að göngu lokinni var haldið aftur í skólann þar sem allir gæddu sér á hollum, girnilegum og ljúffengum veitingum í borði Kaupfélags Steingrímsfjarðar og Arion banka. Þátttakan í átakinu var með eindæmum góð þar sem nemendur og starfsfólk gengu eða hjóluðu í skólann í eina viku.
Meðfylgjandi eru myndir frá deginum:

