Göngum í skólann Laugalandi í Holtum
Nemendur 6. bekkjar Grunnskólans á Laugalandi í Holtum hafa verið mjög virkir í Göngum í skólann í ár. Í samráði við nemendur voru valdar gönguleiðir í nágrenni skólans sem þeir gengu og merktu sem gönguleiðir. Fyrir neðan má sjá nokkur brot úr lýsingu á verkefninu sem nemendur unnu. Verkefnið í heild sinni má sjá hér. 
Í Laugalandsskóla í Holtum eru 12 hressir nemendur í 6.bekk. Í samráði við þá var ákveðið að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni Göngum í skólann, en þar sem við erum í sveitaskóla og flestir koma með skólabíl ákváðum við að finna skemmtilega gönguleið í nánasta umhverfi okkar. Við vildum líka gera gönguleiðina sýnilega fyrir aðra nemendur skólans, sveitunga og ferðamenn, þannig að þeir geti notið þess fallega sem staðurinn hefur að bjóða.
Fyrsta gönguleiðin var einskonar upphitun, tveggja kílómetra ganga í kringum Nefsholtstún. Á leiðinni stoppuðum við og fórum í alls kyns skemmtilega leiki. Veðrið lék við okkur og allir voru jákvæðir og ótal skrítlur sagðar.
Önnur leiðin sem við fórum og ætlum að merkja sem gönguleið er í landi Nefsholts við Laugalandsskóla og munum við ganga hana nokkrum sinnum.
Byrjað er að ganga meðfram Steinagili í átt til Fagurhóls. Á Fagurhóli er gott útsýni og þar uppi er varða sem gaman er að setja stein á. Síðan liggur leiðin yfir í Smáhólamýri þar sem sjá má mikið af berjalyngi.



