Göngum í skólann á Borgarfirði eystra
Nemendur í Grunnskóla Borgarfjarðar eystra tóku þátt í Göngum í skólann. Hér fyrir neðan má sjá frétt af heimasíðu skólans um lokadag átaksins. Þar má jafnframt finna fleiri myndir, sjá hér. 
Lokadagur verkefnisins “Göngum í skólann” var hjá okkur fimmtudaginn 7. október. Við buðum foreldrum, systkinum og öllum þorpsbúum að ganga með okkur eins og í fyrra en fáir sáu sér fært að koma. Nemendur lögðu til að gönguferðin sjálf yrði að þessu sinni um þorpið og nefndu sérstaklega Álfaborgina. Við lögðum því leið okkar í Álfaborgina og á leiðinni stoppum við á völdum stöðum en þar lásu væntanlegir þátttakendur í Stóru upplestrarkeppninni og keppendur frá síðasta skólaári nokkrar borgfirskar álfasögur.
Eftir gönguna borðuðu allir saman en eftir málsverðinn horfðum á upptöku af leikritinu Álfaborgin eftir þær Kristínu og Sigríði Eyjólfsdætur sem Leikfélagið Vaka á Borgarfirði sýndi árið 1995.
Þó að verkefninu sé formlega lokið eru nemendur og starfsfólk þó áfram hvött til þess að koma gangandi í skólann.
