Sími : 5 800 900
Fréttir

Jóladagatal Umferðarstofu

30.11.2010

Líkt og undanfarin tvö ár stendur Umferðarstofa fyrir jólagetraun fyrir grunnskólanema. Getraunin er í formi rafræns jóladagatals sem birtist á www.umferd.is

Frá 1. desember til 24. desember geta grunnskólabörn svarað nýrri spurningu með því að opna jóladagatal á www.umferd.is og komist þannig í verðlaunapott. Tveir heppnir þátttakendur eru dregnir út á hverjum degi og fá þeir tvo bíómiða hvor. Auk þess sem þátttakendur merkja svörin með sínu nafni þá er hægt að merkja svörin líka með nafni bekkjar og skóla. Einn heppinn bekkur verður dreginn út í lokinn og fær hann að launum pítsuveislu og DVD mynd.

Nemendur og bekkir eru hvattir til þess að taka þátt í jóladagatalinu, sem er í senn skemmtilegt og fræðandi.

Jóladagatalið verður á www.umferd.is frá 1. desember til 24. desember. Frá 16. desember verða allir gluggar dagatalsins opnir þannig að börnin geta svarað spurningum fyrir 19.-24. í tölvunni í skólanum áður en þau fara í jólafrí.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica