Sími : 5 800 900
Fréttir

Göngum í skólann 2011

15.8.2011

Nú styttist í að skólastarf hefjist þetta haustið. Eins og undanfarin ár standa Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Ríkislögreglustjóri, Landlæknir, mennta- og menningarmálaráðuneytið, landssamtökin Heimili og Skóli og Umferðarstofa fyrir átakinu Göngum í skólann á haustmánuðum.

Að þessu sinni verður átakið sett miðvikudaginn 7. september og lýkur því á alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 5. október. Fljótlega fá skólar kynningarbréf með upplýsingum um skráningar og annað fyrirkomulag. Nánari upplýsingar koma þegar nær dregur setningu átaksins.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica