Fréttir
Skráningar í Göngum í skólann 2011 streyma inn
Nú styttist í Göngum í skólann 2011. Áminning um verkefnið og skráningu var sent á grunnskóla landsins í síðustu viku.
Í kjölfarið hafa streymt inn þátttökutilkynningar. Nú þegar hafa tuttugu skólar skráð sig til leiks. Skráningarfestur rennur út fimmtudaginn 1. september. Eigum við von á að mun fleiri skólar bætist í hópinn. Hægt er að fylgjast jafn óðum með hvaða skólar hafa skráð sig til leiks með því að velja flipann þátttakendur hér á síðunni.
