Göngum í skólann 2011 sett
Göngum í Skólann var sett formlega í morgun í Síðuskóla á Akureyri. Við setninguna töluðu Ólafur B. Thoroddsen skólastjóri Síðuskóla, Viðar Sigurjónsson sviðsstjóri fræðslu- og þróunarsviðs ÍSÍ, Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri Akureyrar sem setti átakið formlega og Sindri Snær Konráðsson nemandi í 10 bekk sem talaði fyrir hönd nemenda. Að setningarathöfninni lokinni gengu allir nemendur skólans um nágrennið með hvatningarspjöld um ágæti þess að ganga í skólann.
Í ár tekur Ísland þátt í fimmta skipti í alþjóðlega verkefninu Göngum í skólann. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi. Hér á landi hafa aldrei fleiri skólar skráð sig til leiks, en nú þegar hafa 57 skólar skráð sig. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er 5. október. Göngum í skólann verkefnið fer fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur á Alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 5. október.
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri Akureyrar Nemendur gengu fylgtu liði eftir athöfnina um nágrennið
setur Göngum í skólann 2011
Fulltrúar aðstandenda verkefnisins við opnunina Nemendur höfðu útbúið skilti til að benda á kosti þess að ganga í skólann
Sindri Snær Konráðsson sagði frá Göngum í skólann í Síðuskóla
