Göngum í skólann í Vestmannaeyjum

Dagskráin hófst árla morguns við Barnaskólann í Vestmannaeyjum þar sem eldra- og miðstig eru til húsa. Það voru flutt stutt ávörp og fáni skólans dreginn að húni. Þá komu þeir Guðmundur Þórarinsson og Rasmus Kristjanssen leikmenn meistaraflokks ÍBV í fótbolta og tóku lagið með nemendum. Eftir það fóru nemendur og kennarar í örnefnagöngur um alla eyju. Að lokinni göngu mættu foreldrar og grilluðu fyrir nemendur.
Í Hamarsskóla hófst setningin með því að nemendur og starfsfólk fór saman í útileiki að því loknu komu allir saman til formlegrar setningar. Gunnlaugur Grettisson formaður umhverfisráðs flutti stutt ávarp og fáni skólans var dreginn að húni. Heimir Hallgrímsson þjálfari mfl. karla í knattspyrnu var með hvatningarræðu til nemenda. Í lokin tóku nemendur og starfsfólk lagið með Jarli Sigurgeirssyni. Dagskránni lauk svo með skemmtigöngu um nágrenni skólans. Mikil ánægja var með setninguna sem tókst vel í alla staði.
Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir frá setningarhátíðinni.


