Dagskrá nokkurra þátttökuskóla
Framkvæmd Göngum í skólann er mismunandi eftir aðstæðum í hverjum skóla fyrir sig. Flestir skólar sem skráð hafa sig til leiks eru komnir af stað með verkefnið. Hér fyrir neðan má sjá lýsingu á dagskrá nokkurra skóla í tengslum við átakið Göngum í skólann 2011.
Í Grunnskólanum á Hólmavík er útbúið bekkjartré fyrir hvern bekk. Þeir sem ganga eða hjóla fá grænt laufblað til að setja á tréð. Þeir sem keyrðir eru fá brúnt. Þeim sem koma með skólabíl er boðið uppá að ganga síðasta spölinn og fá þá grænt laufblað. Einnig er boðið uppá gönguferð í frímínútum svo þar geta nemendur unnið sér inn grænt laufblað. Nemendur skrá hreyfingu sína á trá frá 14. - 21. september. Göngudagur fjölskyldunnar verður í Strandabyggð 28. september n.k. Lokahóf átaksins sem jafnframt er forvarnardagur verður haldinn 5. október. Um kvöldið heldur Logi Geirsson fyrirlestur um forvarnir. Nánari upplýsingar um dagskrána má finna hér.
Ártúnsskóli er þátttakandi í Göngum í skólann með fjölbreytilegum hætti. Meðal annars má nefna að nemendur fara í vettvangsferð um hverfið og finna öruggustu leiðina í skólann, útbúa kort af gönguleiðum og halda hreyfidagbók. Skólinn tekur þátt í Samgönguviku í Reykjavík 16. - 22. september. Hér má sjá nánar um Göngum í skólann í Ártúnsskóla.
Í Síðuskóla á Akureyri er margt í gangi. Auk þess að átakið var sett í skólanum er ýmislegt annað sem gert er í tengslum við það. Á fimmtudögum eru nemendur beðnir um að safnast saman á ákveðnum stað í götum sínum og ganga eða hjóla saman í skólann. Starfsmenn skólans taka sérstaklega á móti nemendunum í forstofum skólans. Gerð verður talning einn dag á hlutfalli þeirra sem koma fyrir eigin afli í skólann. Nánari upplýsingar um dagskrána í Síðuskóla má sjá hér.
