Sími : 5 800 900
Fréttir

Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn

3.10.2011

logo_iwalkMiðvikudaginn 5. október er alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn haldinn hátíðlegur víða um heim. Um leið lýkur formlega verkefninu Göngum í skólann hér á landi. Er þetta í fimmta skipti sem Ísland tekur þátt í verkefninu. Hófst það í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi.


Í ár tóku 59 skólar um allt land þátt í verkefninu. Hægt er að sjá svipmyndir og lýsingar á því sem íslenskir skólar hafa gert í tilefni átaksins hér á síðunni undir ,,Innsent efni"


Megin markmið Göngum í skólann eru að hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Auk þess er reynt að stuðla að vitundarvakningu fyrir vistvænan ferðamáta og umhverfismálum og það hversu „gönguvænt“ umhverfið er.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica