Sími : 5 800 900
Fréttir

Jóladagatal grunnskólanna

8.12.2011

Líkt og undanfarin ár stendur Umferðarstofa fyrir Jóladagatali grunnskólanna á vefnum www.umferd.is.

Dagatalið opnaði 1. desember og stendur til 24. Á hverjum degi birtist ný spurning en með því að svara henni rétt kemst sá hinn sami í verðlaunapott en úr honum eru dregnir heppnir grunnskólanemendur og fá þeir senda opna boðsmiða í bíó. Þátttakendur geta svo merkt svör sín með bekk og skóla og komist þannig í annan verðlaunapott en í lok desember verður heppinn bekkur dreginn út og hlýtur hann pítsuveislu í verðlaun (pítsur, drykkir og DVD mynd). Í fyrra voru það hressir krakkar á Höfn í Hornafirði sem unnu lokavinninginn. 

 

Margir kennarar hafa notað dagatalið í umferðarfræðslu með því leyfa nemendum að svara spurningunum á skólatíma. Nemendur og bekkir eru hvattir til þess að taka þátt í jóladagatalinu, sem er í senn skemmtilegt og fræðandi. Nánari upplýsingar um jóladagatalið má finna hér.


Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica