Innsent efni frá þátttakendum Göngum í skólann 2011
Höfðaskóli á Skagaströnd tók þátt í Göngum í skólann. Stór hluti nemenda kemur í skólann með skólabíl, gekk því skólaliði með börnunum um bæinn í frímínútum þannig að allir sem vildu gátu tekið þátt. Nemendur voru hvattir til að ganga eða hjóla í skólann meðan á átakinu stóð og gerðu þau það lang flest. Flestir bekkir settu upp stigakerfi þar sem skráð var hvort þau gengu eða hjóluðu í skólann, eða fóru í göngutúr í frímínútum. Haldnir voru göngudagar fyrir alla bekki þar sem farið var í lengri gönguferðir út fyrir bæjarmörkin. Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir af göngu nemenda í sorpflokkunarstöð sveitarfélagsins. Þar fræddust nemendur um endurvinnslu.
Grunnskóli Ísafjarðar tók þátt í Göngum í skólann og hvatti nemendur og kennara til að koma fyrir eigin afli í skólann. Á alþjóðlega Göngum í skólann deginum fór allur skólinn í skrúðgöngu sem markaði lok átaksins. gangan endaði á Silfurtorgi þar sem Árni Heiðar Ívarsson íþróttakennari stjórnaði léttum leikfimiæfingum. Nemendur og kennarar tóku höndum saman og gengu í halarófu inn á skólalóð. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá Grunnskóla Ísafjarðar, fleiri myndir má sjá hér.
Eins og undanfarin ár er Grunnskóli Borgarfjarðar eystri þátttakandi í Göngum í skólann. Allir nemendur gengu auk nemenda í leikskólanum, foreldrum var boðið að ganga með. Að þessu sinni var veðrátta óhagstæð svo komið var fram í október þegar fallegur fimmtudagur var valinn til göngunnar. Að þessu sinni var ferðinni heitið að Hólatjörn. Þegar heim var komið var snædd dýrindis máltíð sem nemendur 8. - 10. bekkjar höfðu útbúið daginn áður. Hér til hliðar má sjá mynd af hópnum, ef smellt er á myndina má sjá fleiri myndir frá ferðinni.
Í Breiðholtsskóla endaði átakið Göngum í skólann með því að nemendur fóru út að ganga föstudaginn 7. október s.l. Allir bekkir gengu með kennurum sínum, margir um Elliðaárdalinn. Allir nutu útiverunnar í fallegu veðri. Hægt er að sjá fleiri myndir með því að velja hverja mynd fyrir sig af þeim sem eru hér fyrir neðan.
Í Grunnskólanum á Hólmavík var útbúið bekkjartré fyrir hvern bekk. Þeir sem ganga eða hjóla fá grænt laufblað til að setja á tréð. Þeir sem keyrðir eru fá brúnt. Þeim sem koma með skólabíl er boðið uppá að ganga síðasta spölinn og fá þá grænt laufblað. Einnig var boðið uppá gönguferð í frímínútum svo þar geta nemendur unnið sér inn grænt laufblað. Nemendur skrá hreyfingu sína á tré frá 14. - 21. september. Göngudagur fjölskyldunnar verður í Strandabyggð 28. september n.k. Lokahóf átaksins sem jafnframt er forvarnardagur verður haldinn 5. október. Um kvöldið hélt Logi Geirsson fyrirlestur um forvarnir. Nánari upplýsingar og tilvísun í myndir má sjá á heimasíðu skólans hér.
Brekkubæjarskóli á Akureyri tók þátt í verkefninu í fyrsta skipti. Verkefnið var kynnt fyrir kennurum skólans og kynnti hver umsjónarkennari það fyrir sínum nemendum. Fór það eftir kennurum hvernig unnið var með verkefnið. Margir fóru í gönguferðir og töluðu um umferðaröryggi og mikilvægi hreyfingar. Aðrir skráðu hve margir komu gangandi, hjólandi eða akandi í skólann í nokkra daga og unnu með það í stærðfræðinni. Enn aðrir gerðu veggspjöld með hugmyndum nemenda um mikilvægi þess að ganga í skólann. Verkefnið var kynnt foreldrum með tölvupósti og einnig á heimasíðu skólans, sjá hér.
Fjórði bekkur tók saman þau atriði sem þau telja að lýsi best af hverju við eigum að ganga eða hjóla í skólann, sjá hér. Fyrir neðan má svo sjá myndræna framsetningu á helstu kostum þess að ganga í skólann.
Í Njarðvíkurskóla var átakið Göngum í skólann hluti af Heilsu- og vorvarnarviku Reykjanesbæjar sem stóð 3. - 7. október. Upplýsingar um forvarnarvikuna og það sem henni tengist í skólanum má sjá hér. Í tengslum við Göngum í skólann unnu umsjónarkennarar ýmis verkefni með nemendum, fóru þeir t.d. í gönguferðir í nágrenni skólans og skoðuðu öruggar gönguleiðir til og frá skóla. Nemendur unnu einnig verkefni varðandi umferðarmerki og fóru í gönguferðir til að skoða umferðarmerkin í nágrenni skólans. Í nokkrum bekkjum skráðu umsjónarkennarar hverjir gengu/hjóluðu í og úr skóla. Á alþjóðlega Göngum í skólann deginum 5. október s.l. var efnt til hópgöngu í skólann. Fóru tveir kennarar fyrir hópnum, alls gengu um 30 af 100 nemendum skólans fylktu liði. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar svipmyndir frá átakinu í Njarðvíkurskóla.
Í Snælandsskóla í Kópavogi var gerð könnun hjá nemendum í 1. og 6. bekkjum skólans um hvernig þau komu í skólann. Allir nemendur fóru í gönguferðir á Alþjóðlega Göngum í skólann daginn 5. okt s.l.
Í Álftanesskóla var farið í gönguferð í tilefni átaksins og Alþjóðlega Göngum í skólann dagsins þann 5. október s.l. Auk grunnskólans gengu leikskólabörn í Holtakoti og krakkakoti stuttan spöl auk þess sem félagar í félagi eldriborgara á Álftanesi voru hvattir til að ganga með. Gengið var með fána sveitarfélagsins og íslenska fánann. Hér má sjá svipmyndir af göngu Álftanesskóla auk korts af gönguleiðinni.
Í Djúpavogsskóla hefur þátttaka verið mjög góð í ár. Langflestir nemendur hafa gengið eða hjólað alla dagana sama hvernig hefur viðrað. Á alþjóðlega Göngum í skólann deginum tóku nemendur þátt í Norræna skólahlaupinu. Yngstu nemendurnir hlaupa 2,5 km en þau eldri velja 5 eða 10km hlaup. Að hlaupi loknu eru ávextir og djús í boði og sundlaugarpartý á eftir. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar svipmyndir frá Djúpavogsskóla og því sem tengist Göngum í skólann 2011
Í Hvassaleitisskóla hefur þátttaka í göngum í skólann verkefninu verið góð. Nemendur streyma fyrir eigin afli að skólanum. Yngri nemendur merkja við þá daga sem þau koma og fara gangandi í og úr skóla. Eldri nemendur merkja einnig við sig en fara auk þess inn á borgarvefsjá og mæla vegalengdir. 14. september fóru nemendur og allt starfsfólk skólans í göngu í Grundargerðisgarðinn. Fyrir neðan fylgir ein mynd úr ferðinni, fleiri myndir má sjá á heimasíðu skólans sjá hér.
Í Laugarnesskóla voru allir nemendur hvattir til að koma í skólann fyrir eigin afli, gangandi eða hjólandi, og skrá það síðan á lista sem hefur verið í öllum bekkjarstofum. Þegar verkefninu lýkur verða listarnir teknir niður og munu nemendur úr umhverfisráði fara yfir skráningarnar til að finna út hvaða bekkur eða bekkir hafa bestu þátttökuna og verða viðurkenningar veittar.
Að ganga í skólann passar vel við markmið okkar í umhverfismálum þar sem við viljum stuðla að því að draga úr mengun og auka hreyfingu. Þá er Laugarnesskóli líka heilsueflandi skóli. Eins og sjá má virðist átakið skila árangri þar sem allar hjólagrindur eru fullar!
Árskóli á Sauðárkróki tekur þátt í Göngum í skólann eins og undanfarin ár, upplýsingar um framkvæmd átaksins má finna hér.
Í Sjálandsskóla er lögð mikil áhersla á að nemendur komi fyrir eigin vélarafli í skólann. Sú áhersla er allt skólaárið. Að hausti er lögð mikil áhersla á umhverfið og vini. Fyrsti og annar bekkur útfærði þemað umhverfið og öryggi á þá leið að útikennslutímar fóru í það að ganga frá skólanum og heim til hvers nemenda og kynna fyrir þeim öruggar gönguleiðir um bæinn, örugga gönguleið í og úr skóla og öruggar leiðir heim til vina sinna. Þriðji og fjórði bekkur fór í hjólaferð, hér fyrir neðan má sjá myndir úr ferðinni.
Í Tálknafjarðarskóla er hreyfimánuður í september. Merkt er við hvort nemendur koma gangandi eða hjólandi í skólann. Kílómetrarnir eru taldir og merktir á Íslandskort. Skólinn tók þátt í norræna skólahlaupinu og heilsuvika var á vegum ungmennafélagsins, sveitarfélagsins og skólans. Hér fyrir neðan má sjá mynd af nokkrum hressum krökkum í Tálknafjarðarskóla.
Grunnskóli Vestmanneyja tekur þátt í Göngum í skólann 2011 með fjölbreytilegum hætti. Verkefnið var sett formlega föstudaginn 9. september með dagskrá í Barnaskólanum kl. 9 og Hamarsskóla kl. 11.15. Hér má sjá hvernig skipulag átaksins er í skólanum og hvernig unnið er mismunandi með verkefnið eftir skólastigum. Hér fyrir neðan má svo sjá svipmyndir frá setningu átaksins. Einnig má sjá nánari upplýsingar um setningarathöfnina hér.
Fulltrúi lögreglunnar kom í heimsókn í 1. - 7. bekk og fræddi nemendur um útivistartímann, umferðarrreglur og réttan útbúnað við hjólreiðar. Einnig hvatti hann börnin til að ganga eða hjóla á gangstéttum eða hjólastígum þar sem þeir finnast. Í tengslum við heimsóknina voru settar upp hjólaþrautir á skólalóðinni sem nemendur gátu notað í frímínútum, einnig hefur brautin verið höfð opin að skóla loknum, margir nemendur hafa nýtt sér það tækifæri. Í tengslum við verkefnið hafa nemendur og kennarar farið í örnefnagöngur víða um eyjuna.





























