Beint í leiðarkerfi vefsins.
Göngum í Skólann var sett formlega 8. september í Fagralundi í Kópavogi af Ögmundi Jónassyni samgöngu- og sveitastjórnarráðherra. Við setninguna fluttu ávörp þær Rannveig Ásgeirsdóttir formaður skólanefndar Kópavogsbæjar og Oddný Sturludóttir formaður Menntaráðs Reykjavíkurborgar. Nemendur úr 2. og 7. bekk Snælandsskóla og Fossvogsskóla voru viðstaddir setninguna. Að lokinni setningu var þeim boðið uppá umferðarratleik sem Umferðarstofa hefur útbúið. Myndirnar hér að neðan eru frá setningunni.
Göngum í skólann 2009 var sett í Flóaskóla. Flóaskóli er sveitaskóli þar sem börnunum er ekið í skólann. Við opnun átaksins sýndu nemendur réttar aðferðir við að umgangast skólabílinn. Við setninguna fluttu ávörp þau Hafsteinn Pálsson formaður Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, Kristín Sigurðardóttir skólastjóri Flóaskóla, Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður á Selfossi og Guðni Ágústsson fyrrverandi þingmaður og ráðherra. Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir frá opnuninni.
Opnun Göngum í skólann 2008 fór fram í Grundaskóla á Akranesi. Karl V. Matthíasson formaður umferðarráðs flutt stutt ávarp og að því loknu fylgdu eldri nemendur þeim yngri um nánasta umhverfi skólans.
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá opnun Göngum í skólann 2007 sem fram fór í Grunnskóla Seltjarnarness. Þegar búið var að setja verkefnið formlega af Þórólfi Þórlindssyni forstjóra Lýðheilsustöðvar var gengið fylktu liði um nágrenni skólans undir dyggri leiðsögn Ríkislögreglustjóra Haraldar Johannessen