Myndir
Myndir 2010
Setning Göngum í skólann 2010
Göngum í Skólann var sett formlega 8. september í Fagralundi í Kópavogi af Ögmundi Jónassyni samgöngu- og sveitastjórnarráðherra. Við setninguna fluttu ávörp þær Rannveig Ásgeirsdóttir formaður skólanefndar Kópavogsbæjar og Oddný Sturludóttir formaður Menntaráðs Reykjavíkurborgar. Nemendur úr 2. og 7. bekk Snælandsskóla og Fossvogsskóla voru viðstaddir setninguna. Að lokinni setningu var þeim boðið uppá umferðarratleik sem Umferðarstofa hefur útbúið. Myndirnar hér að neðan eru frá setningunni.
