Efst á síðu
Beint á efnisyfirlit síðunnar

Verkefnavinna í Húsaskóla og Breiðagerðisskóla og alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er á morgun

03.10.2017

Margir skólar standa fyrir flottum og skemmtilegum verkefnum í tengslum við Göngum í skólann. Í Húsaskóla var 4 vikna verkefni í gangi sem skipt var niður í 4 hluta og í hverri viku var verkefni sem tengdist göngu eða hreyfingu, áskorun og að lokum hugmyndavinna til að sökkva sér meira ofan í viðfangsefnið. Í viku 1 var Núvitundarganga þar sem gengið var um hverfið, áskorun sem fólst í ruslatínslu og skráningu og umferðarmerki sérstaklega skoðuð. Í viku 2 var farið í Grendarskóg á degi íslenskrar náttúru líkt og við fjölluðum um í frétt nýlega. Vika 3 og 4 var helguð Kortagöngu þar sem heimili nemenda voru merkt inn á kort, myndir teiknaðar af nærumhverfinu og vegalengdir mældar. Hér má sjá myndir frá kortagöngunni þar sem nemendur sýndu samnemendum sýnum hvar þeir eiga heima eftir góðan göngutúr um hverfið.

Í Breiðagerðisskóla hafa nemendurnir unnið að flottu verkefnum sem skilaði sér í flottu myndefni og veggskreytingum í skólanum. Þar má sjá margar myndir af þeirri hreyfingu og leikjum sem staðið var fyrir úti við og myndskreytingar við hæfi með áherslu á virkan samgöngumáta og umhverfisvænar lausnir.  Hér fyrir neðan má sjá myndir af verkefninu og einnig má sjá myndir frá þátttöku Breiðagerðisskóla í Norræna skólahlaupið árið 2017 hérna á heimasíðu skólans.

Á morgun er svo hinn alþjóðlegi Göngum í skólann dagur sem haldinn er hátíðlegur víða um heim. Með þeim degi lýkur Göngum í skólann þetta árið og vonandi halda sem flestir þátttökuskólar daginn sérstaklega hátíðlegan með hollri hreyfingu og með því að hvetja nemendur sína til að ferðast til skólans á virkan hátt.

Til baka

Fréttasafn

Fréttasafn

2024

Ágúst, September, Október, Nóvember.

2023

Ágúst, September, Október.

2022

Janúar, Ágúst, September, Október.

2021

Ágúst, September, Október, Desember.

2020

September, Október.

2019

Ágúst, September, Október, Desember.

2018

Ágúst, September, Október.

2017

Ágúst, September, Október, Nóvember.

2016

Ágúst, September, Október.

2015

Júlí, Ágúst, September, Október.

Heim
  • Forsíða
  • Skráning
  • Skráðir skólar
  • Sendu okkur
    • Myndir
    • Myndbönd
    • Frásagnir
  • Um GÍS
    • Að taka þátt
    • Ýmislegt gagnlegt
    • Árin
    • Fréttir
    • Hafa samband
  • Umferð.is
  • Heilsuefling
Efst á síðu
  • Þú ert hér:
  • Forsíða
  • Um GÍS
  • Fréttir
ÍSÍ - Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
Engjavegur 6 - 104 Reykjavík
Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi