Umferðavefurinn Umferð.is er samvinnuverkefni Námsgagnastofnunar, Samgöngustofu og Grundaskóla en hann er fræðsluvefur um umferðamál fyrir nemendur í grunnskólum, kennara og foreldra. Gert er ráð fyrir að vefurinn sé í sífelldri þróun og leitast er við að nýju og fjölbreyttu efni sé markvisst bætt við.
Umferðavefurinn skiptist í þrjá hluta; fyrir nemendur, fyrir kennara og varðandi öryggi & umferðaröryggisáætlun skóla. Vefurinn er afar gagnlegur og til þess fallinn að auka áhuga á umferðaröryggi í skólastarfinu. Við hvetjum nemendur, kennara og foreldra til að kynna sér vefinn Umferð.is.