Göngum í skólann-verkefnið leggur áherslu á að börn læri á umhverfi sitt með því að ganga í skólann. Við viljum öll að börnum finnist þau vera hluti af umhverfi sínu og læri þannig að bera virðingu fyrir því. Göngum í skólann getur tvímælalaust haft þar áhrif og foreldrar og börn eru því hvött til að fara gangandi í skólann, a.m.k. í septembermánuði, og nota um leið tækifærið til að kynnast sínu nánasta umhverfi.