Efst á síðu
Beint á efnisyfirlit síðunnar

27.09.2017 08:34

Norræna skólahlaupið á Suðureyri og endurskinsvesti í Varmárskóla

Norræna skólahlaupið fór fram á Suðureyri sem hluti af sérstöku tveggja vikna Göngum í skólann átaki þar. Þá var öllum börnum í 1. og 2. bekk í grunnskólum Mosfellsbæjar afhent endurskinsvesti til eignar í tilefni af Göngum í skólann.
Sjá nánar
25.09.2017 08:05

Vinabekkir í Vestmannaeyjum og Húsaskóli í skógarferð

Grunnskólinn í Vestmannaeyjum setti Göngum í skólann af stað með hópefli hjá vinabekkjum skólans og ávaxtastund. Húsaskóli fór í rannsóknarferð í grenndarskóg og tóku plankaáskorun.
Sjá nánar
23.09.2017 07:02

Íþróttavika Evrópu er hafin!

Í dag hefst Íþróttavika Evrópu (European Week of Sports) og stendur hún yfir til 30. september. Hún verður ræst með Hjartadagshlaupinu sem hefst í dag kl.10:00 á Kópavogsvelli. Margir viðburðir verða á meðan á Íþróttavikunni stendur og er markmiðið með vikunni að kynna íþróttir og hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingaleysi meðal almennings.
Sjá nánar
21.09.2017 08:00

Bíllausi dagurinn á morgun og umferðaröryggismyndbönd

Á morgun 22. september er bíllausi dagurinn en með honum lýkur Evrópskri Samgönguviku. Ýmislegt er í gangi af því tilefni og frítt verður í strætó. Þá er gott að hafa umferðarreglurnar á hreinu og hægt er horfa á myndbönd um umferðaröryggi frá Samgöngustofu.
Sjá nánar
20.09.2017 12:35

Íþróttavika Evrópu hefst laugardaginn 23. september

Núna um helgina hefst Íþróttavika Evrópu (European Week of Sports) og stendur hún yfir frá 23.-30. september. Göngum í skólann er hluti af því verkefni og markmiðin hin sömu varðandi hreyfingu og heilbrigðan lífstíl grunnskólabarna.
Sjá nánar
18.09.2017 12:02

Glerárskóli í gönguferðum og myndband frá setningarhátíð

Glerárskóli hefur gert víðreist og farið í margar gönguferðir innan Akureyrar í tilefni af Göngum í skólann 2017. Þá birtir BeActive glæsilegt myndband sem tekið var á setningarhátíðinni í Víðistaðaskóla þann 6. september.
Sjá nánar
14.09.2017 12:28

Ísfirðingar gengu á Sandfellið og Þjórsárskóli hjólaði um Suðurlandið

Mikil stemmning er meðal þátttakenda í Göngum í skólann 2017 og um allt land eru skólar að standa fyrir flottum verkefnum í tilefni af því. Í Grunnskólanum á Ísafirði var farið í árlega fjallgöngu og nemendur í Þjórsárskóla fóru í hjólaferðir um sveitir Suðurlands. Frábær framtak hjá flottum nemendum og starfsfólki.
Sjá nánar
12.09.2017 11:50

Dalskóli tók forskot á sæluna með fjallgöngu og Norræna skólahlaupið fór fram

Í Dalskóla hófst átakið Göngum í skólann 2017 þann 1. september sl. þegar nemendur og kennarar gengu fylktu liði á Úlfarsfellið í mildu haustveðri. Þá fór Norræna skólahlaupið fram víða um land þann 8. september og var það formlega sett í Giljaskóla á Akureyri.
Sjá nánar
08.09.2017 14:09

Fjallganga í Rimaskóla og skráning heldur áfram

Nemendur í Rimaskóla komu saman á sal þar sem Helgi Árnason skólastjóri fjallaði um mikilvægi hreyfingar, hollustu og heilbrigði. Að því loku gengu allir nemendur hollustuhring umhverfis skólann og nemendur í 6.bekk gerðu gott betur með hressandi fjallgöngu í blíðunni. Skráning hefur farið mjög vel af stað og heldur áfram fram að hinum alþjóðlega Göngum í skólann degi þann 4. október.
Sjá nánar
06.09.2017 11:55

Göngum í skólann 2017 sett af stað í Víðistaðaskóla

Í morgun fór fram setningarhátíð Göngum í skólann 2017 í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði en þetta er í 11. skipti sem verkefnið fer fram. Mikil gleði ríkti og fluttu nemendur flott tónlistaratriði fyrir hátíðargesti áður en formleg gangsetning fór fram með góðum göngutúr um Víðistaðatún.
Sjá nánar
05.09.2017 06:03

Setningarhátíð í Víðistaðaskóla á morgun

Göngum í skólann 2017 verður sett hátíðlega af stað á morgun, miðvikudaginn 6.september, í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði með ávörpum og tónlistaratriðum. Þetta er í ellefta sinn sem verkefnið er ætlað grunnskólabörnum og markmið þess er að hvetja þau til að nýta virkan ferðamáta til og frá skóla.
Sjá nánar
04.09.2017 13:36

Örugg ráð, reiðhjólaaðstaða og gangbrautir

Nú er skólastarfið komið á fullt skrið ásamt miklu lífi í félagsmiðstöðvum og íþróttastarfi hjá grunnskólabörnum um allt land. Því er mikilvægt að foreldrar og kennarar taki sér góðan tíma í að fara yfir umferðarreglurnar með hinum ungu vegfarendum og passi upp á að öryggisbúnaður sé í góðu lagi. Einnig er brýnt að reiðhjólaaðstaða á skólalóðum sé til staðar og að gangbrautir við skóla séu vel merktar.
Sjá nánar

Fréttasafn

Fréttasafn

2024

Ágúst, September, Október, Nóvember.

2023

Ágúst, September, Október.

2022

Janúar, Ágúst, September, Október.

2021

Ágúst, September, Október, Desember.

2020

September, Október.

2019

Ágúst, September, Október, Desember.

2018

Ágúst, September, Október.

2017

Ágúst, September, Október, Nóvember.

2016

Ágúst, September, Október.

2015

Júlí, Ágúst, September, Október.

Heim
  • Forsíða
  • Skráning
  • Skráðir skólar
  • Sendu okkur
    • Myndir
    • Myndbönd
    • Frásagnir
  • Um GÍS
    • Að taka þátt
    • Ýmislegt gagnlegt
    • Árin
    • Fréttir
    • Hafa samband
  • Umferð.is
  • Heilsuefling
Efst á síðu
  • Þú ert hér:
  • Forsíða
  • Um GÍS
  • Fréttir
ÍSÍ - Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
Engjavegur 6 - 104 Reykjavík
Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi