Í dag er alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn og einnig síðasti dagur Göngum í skólann á Íslandi árið 2020. Alls skráðu 75 skólar sig til leiks sem er metþátttaka en aðeins árið 2018 hafa eins margir skólar tekið þátt.Sjá nánar05.10.2020 09:48
Þann 7. október er alþjóðlegur göngum í skólann dagur og er það jafnframt síðasti dagur Göngum í skólann verkefnisins hér á landi. Það er gaman að fylgjast með því sem sem hefur farið fram í skólunum en þeir skólar sem ekki hafa sent inn efni eru hvattir til þess að gera það.Sjá nánar02.10.2020 13:06
Þann 4. október fer fram World Walking Day sem er ganga sem fer fram um allan heim en markmiðið með göngunni er að koma boðhlaupskefli á rafrænan hátt yfir öll 24 tímabeltin. TAFISA (The Association For International Sport for All) skipuleggur verkefnið ár hvert en alls hafa milljónir manns í yfir 160 löndum tekið þátt síðan verkefnið fór fyrst af stað árið 1991.Sjá nánar30.09.2020 20:35
Göngum í skólann fer fram um allt land þessa dagana. ÍSÍ hvetur starfsfólk skóla, foreldra og nemendur til að tileinka sér virkan ferðamáta til og frá skóla strax í upphafi skólaárs. Skráning í Göngum í skólann er í fullum gangi en nú þegar hafa 75 skólar skráð sig til þátttöku í verkefninu. Hægt er að skrá skólann til þátttöku hér á vefsíðu verkefnisins þar til 7. október sem er alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn. Sjá nánar25.09.2020 14:42
Íþróttavika Evrópu hófst þann 23. september síðastliðinn og stendur til 30. september.
Í tilefni af því eru tveir leikir á samfélagsmiðlum í gangi en annarsvegar er Instagram myndaleikur þar sem allir eru hvattir til þess að hreyfa sig, taka mynd og birta á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #beactiveiceland. Hinsvegar er TikTok dansáskorun í gangi en allir eru hvattir til þess að læra BeActiveIceland dansinn á TikTok, birta hann og nota myllumerkið #beactiveicelandSjá nánar21.09.2020 10:47
Þann 23. – 30. september fer fram Íþróttavika Evrópu (#BeActive) víðsvegar um Evrópu. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur fengið styrk frá Erasmus+ styrktarkerfinu til þess að standa fyrir verkefninu hér á landi. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að hvetja Evrópubúa til að hreyfa sig meira í sínu daglega lífi og eru allir hvattir til þess að finna sér hreyfingu við hæfi. Sjá nánar16.09.2020 13:13
Það er gaman að fá frásagnir og myndir frá því sem fer fram í grunnskólum landsins í tilefni af Göngun í skólann verkefninu. Nýverið sendi Rimaskóli inn stutta frásögn og myndir með: Sjá nánar10.09.2020 14:18
Göngum í skólann fer vel af stað en alls eru nú 70 skólar skráðir til leiks í verkefninu. Þátttökuskólar eru hvattir til þess að senda inn myndir og frásagnir af því sem fer fram í skólunum í tilefni af Göngum í skólannSjá nánar02.09.2020 13:00
Göngum í skólann 2020 verður sett hátíðlega miðvikudaginn 2.september í Breiðagerðisskóla í Reykjavík. Þetta er í 14. sinn sem verkefnið er sett hér á landi. Tekur þinn skóli ekki örugglega þátt í ár?
Sjá nánar24.08.2020 13:50
Skólasetning hefur nú farið fram í flestum grunnskólum landsins og skólabörn um land allt eru farin að mæta aftur í skólann eftir sumarfrí. Við hvetjum starfsfólk skóla, foreldra og nemendur til að tileinka sér virkan ferðamáta til og frá skóla strax í upphafi skólaárs. Sjá nánar23.08.2020 09:00
Opið er fyrir skráningu í Göngum í skólann 2020 og hefur skráning skóla farið vel af stað. Hægt verður að skrá sig til leiks meðan á verkefninu stendur eða fram að alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 7. október næstkomandi.Sjá nánar17.08.2020 11:08
Í tilefni af göngum í skólann sem hefst þann 2. september næstkomandi minnum við á umferðarvefinn þar sem finna má mikið af skemmtilegu fræðsluefni um umferðarmál fyrir nemendur, kennara og foreldra.Sjá nánar05.08.2020 09:28
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands ásamt samtarfsaðilum ræsir verkefnið Göngum í skólann í fjórtánda sinn miðvikudaginn 2. september næstkomandi. Ætlar þinn skóli ekki örugglega að taka þátt í ár?Sjá nánar