Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er miðvikudaginn 10. október og lýkur þar með Göngum í skólann formlega þetta árið. Alls 75 skólar eru skráðir til þátttöku í verkefninu og standa skólarnir fyrir fjölbreyttum og skemmtilegum uppákomum í tilefni af því. Sjá nánar02.10.2018 14:33
Þónokkuð af frásögnum frá grunnskólum hafa borist vegna Göngum í skólann. Hvaleyraskóli sendi meðal annars frásögn af því sem fram fór í skólanum í tilefni af verkefninuSjá nánar27.09.2018 09:28
Okkur hafa borist þónokkrar frásagnir af því sem hefur verið gert í skólum í tilefni af Göngum í skólann. Húsaskóli sendi frásögn af metnaðarfullu starfi sem er í gangi hjá þeim og má lesa frásögnina hér: Sjá nánar24.09.2018 10:53
Grunnskólinn á Þingeyri hleypti Ólympíuhlaupinu af stað þann 14. september síðastliðinn og tengdi hlaupið við Göngum í skólann verkefnið. Ólympíuhlaupið sem áður var þekkt sem Norræna skólahlaupið hefur farið fram í Grunnskólum landsins óslitið frá því árið 1984 og Göngum í skólann fer nú fram tólfta árið í röð. Sjá nánar12.09.2018 09:42
Göngum í skólann verkefnið fer vel af stað en alls 71 skólar eru skráðir til þátttöku í verkefninu.
Víkurskóli og Brekkuskóli hafa báðir sett myndir á heimasíðuna en þátttökuskólar eru einmitt hvattir til þess að senda myndir, frásagnir og/eða myndbönd af verkefninu. Sjá nánar05.09.2018 10:45
Göngum í skólann 2018 verður sett hátíðlega af stað miðvikudaginn 5.september í Ártúnsskóla, Árbæ. Þetta er í 12 sinn sem verkefnið er sett hér á landi.Sjá nánar29.08.2018 15:44
Opið er fyrir skráningu í Göngum í skólann 2018 og hefur skráning skóla farið vel af stað. Hægt verður að srká sig til leiks meðan á verkefninu stendur eða fram að alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 10. október næstkomandi.Sjá nánar23.08.2018 09:35
Nú er skólastarf hafið í flestum grunnskólum landsins og er tilvalið að hvetja börnin til að velja sér virkan ferðamáta í skólann strax í byrjun skólaárs.Sjá nánar16.08.2018 08:44
Verkefninu Göngum í skólann verður hleypt af stað í tólfta sinn miðvikudaginn 5. september næstkomandi og lýkur svo formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 10. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.
Sjá nánar