Göngum í skólann var sett í 9. skipti í morgun. Í þetta sinn fór setningarhátíðin fram í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ. Jóhanna Magnúsdóttir, skólastjóri Lágafellsskóla byrjaði á því að bjóða nemendur og gesti velkomna. Ólöf Nordal, innanríkisráðherra og Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri fluttu stutt ávörp og hvöttu þau nemendur til þess að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta á leið sinni í skólann. Þá hvöttu þau enn fremur nemendur til þess að fá foreldra sína til að ganga með sér í skólann og vera almennt duglega að hreyfa sig. Hildur Karen, frá Grundaskóla á Akranesi, opnaði nýuppfærðan vef Samgöngustofu, umferd.is. Vefurinn er fræðsluvefur um umferðamál fyrir nemendur, kennara og foreldra þar sem finna má fjölbreytt efni við allra hæfi. María Ólafsdóttir, evróvision-fari söng nokkur lög og krakkarnir tóku vel undir með henni. Að því loknu sungu nemendur Lágafellsskóla skólasönginn sinn fyrir gesti ásamt nýju erindi sem tónlistarkennari skólans samdi við lagið Göngum göngum.
Verkefnið var svo sett með viðeigandi hætti þegar nemendur, starfsfólk, aðstandendur verkefnisins, Haraldur bæjarstjóri, Sigríður Björk lögreglustjóri, sérsveitarmenn og aðrir gestir gengu stuttan hring.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur hlotið styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ styrkjakerfi þeirra til verkefna sem munu tengjast European Week of Sport eða Íþróttaviku Evrópu sem haldin verður 7. – 13. september nk. Í yfir 30 Evrópulöndum. Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Sjá nánar á www.ec.europa.eu/sport/week
Skráning skóla fer mjög vel af stað, enn geta skólar bæst í hópinn. Einfalt er að fara inn á vef verkefnisins www.gongumiskolann.is og skrá sig til leiks. Þar er líka að finna hugmyndir að framkvæmd og skipulagi Göngum í skólann fyrir skólana. Gott er að skoða hvað Grundaskóli á Akranesi hefur verið að gera.
Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er 7. október. Vegna birtu og veðuraðstæðna fer Göngum í skólann verkefnið fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur á Alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 7. október n.k.
Meginmarkmið Göngum í skólann eru að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla. Um leið er ætlunin að: Hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli. Draga úr umferð við skóla: Draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Betra og hreinna loft ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfi. Stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu „gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf. Samfélagsvitund eykst. Hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna: Hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II og stuðlar að streitulosun, betri sjálfsmynd, o.fl.
Þeir aðilar sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið, embætti Landlæknis, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Umferðastofa og Landssamtökin Heimili og skóli.
Nánari upplýsingar um verkefnið gefur Hrönn Guðmundsdóttir verkefnastjóri Almenningsíþróttasviðs hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands með tölvupósti hronn@isi.is eða í síma 514 4023. Heimasíða verkefnisins er www.gongumiskolann.is.