Efst á síðu
Beint á efnisyfirlit síðunnar

Bíllausi dagurinn á morgun og umferðaröryggismyndbönd

21.09.2017

Á morgun 22. september er bíllausi dagurinn en með honum lýkur Evrópskri Samgönguvika sem hófst þann 16. september. Eins og nafnið gefur til kynna eru allir hvattir til að láta bílana vera óhreyfða þann daginn og nýta sér virkan samgöngumáta til og frá skóla eða vinnustað. Til að auðvelda sem flestum að vera bíllausir þá verður frítt í strætó á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri sem ávallt. Þátttakendur í Göngum í skólann fá því sérstaklega gott tilefni og tækifæri til að koma sér á eigin afli til og frá skóla á morgun.

Samgönguvikan er samstillt átak sveitarfélaga í Evrópu um að ýta undir sjálfbærar samgöngur en evrópskur vefur átaksins er www.mobilityweek.eu. Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli þá samgöngumáta sem allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft.

Hægt er að kynna sér átakið nánar á Facebook-síðu Evrópskrar Samgönguviku. 

Þá er vert að benda á fræðslumyndbönd Samgöngustofu um umferðarmál þar sem farið er yfir fjöldamörg atriði sem tengjast umferðaröryggi. Sér í lagi þá eiga myndböndin Á leið í skólann, Gangandi vegfarendur og Hjólað á gangstígum erindi til allra þeirra sem standa að eða eru þátttakendur í Göngum í skólann.

Við hvetjum alla til að horfa á myndböndin með nemendum eða börnum sínum til að yngri vegfarendurnir séu sem best undirbúnir undir að fara út í umferðina og nota virkan samgöngumáta á leið í skólann.

Til baka

Fréttasafn

Fréttasafn

2022

Janúar, Ágúst, September, Október.

2021

Ágúst, September, Október, Desember.

2020

September, Október.

2019

Ágúst, September, Október, Desember.

2018

Ágúst, September, Október.

2017

Ágúst, September, Október, Nóvember.

2016

Ágúst, September, Október.

2015

Júlí, Ágúst, September, Október.

Heim
  • Forsíða
  • Skráning
  • Skráðir skólar
  • Sendu okkur
    • Myndir
    • Myndbönd
    • Frásagnir
  • Um GÍS
    • Að taka þátt
    • Ýmislegt gagnlegt
    • Árin
    • Fréttir
    • Hafa samband
  • Umferð.is
  • Heilsuefling
Efst á síðu
  • Þú ert hér:
  • Forsíða
  • Um GÍS
  • Fréttir
ÍSÍ - Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
Engjavegur 6 - 104 Reykjavík
Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi