Efst á síðu
Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hofsstaðaskóli með skemmtilegt skópartý og fjallgöngutúr Þjórsárskóla

13.10.2017

Dagana 28. september – 4. október voru allir nemendur Hofstaðaskóla hvattir til að koma gangandi eða hjólandi í skólann í tilefni af Göngum í skólann verkefnisins. Þann 4. október var svo alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn og hófst skóladagurinn með skópartýi þar sem nemendur og starfsfólk komu með gamla skó að heiman og lögðu til skó í skópartýið. Nemendur röðuðu skónum út frá skólanum og upp göngustíginn í átt að Mýrinni.

Þátttakan fór fram úr björtustu vonum og voru skópörin alls 396 sem raðað var í gönguna og höfðu nemendur mjög gaman af þessum gjörningi. Allir skórnir voru svo gefnir til Fjölskylduhjálpar Íslands og fylltu þeir alls 15 poka. Glæsilegt framtak hjá Hofstaðaskóla og skemmtilegt skópartý fyrir góðan málstað.

Nemendur í 5., 6. og 7. bekk í Þjórsárskóla fóru í 3 klst. göngutúr þar sem meðal annars var farið í fjallgöngu á Skaftholtsfjall. Á leiðinni sáu þeir krumma og hesta og margt fleira skemmtilegt í sveitasælunni. Brekkan var brött upp fjallið en allir komust upp á topp og eftir góða hvíld var haldið til baka. Þrælfínt hjá Þjórsárskóla sem hafa verið afar virkir í Göngum í skólann og farið í hjólatúr og fleira.

Því má við bæta að margir starfsmenn í Þjórsárskóla koma víða að úr sveitinni og því ekki auðvelt að ganga í skólann á hverjum morgni. En til að taka þátt í Göngum í skólann fundu þeir lausn á því og lögðu bílunum við félagsheimilið og gengu þaðan. Göngutúrinn gerði öllum gott og eru starfsmenn sammála um að þeir mæti ferskari til vinnu fyrir vikið. Meðfylgjandi er mynd af galtómu bílastæði við Þjórsárskóla á skóladegi því til sönnunar að starfsmenn voru afar virkir í þessari flottu nálgun á verkefninu.

Til baka

Fréttasafn

Fréttasafn

2024

Ágúst, September, Október, Nóvember.

2023

Ágúst, September, Október.

2022

Janúar, Ágúst, September, Október.

2021

Ágúst, September, Október, Desember.

2020

September, Október.

2019

Ágúst, September, Október, Desember.

2018

Ágúst, September, Október.

2017

Ágúst, September, Október, Nóvember.

2016

Ágúst, September, Október.

2015

Júlí, Ágúst, September, Október.

Heim
  • Forsíða
  • Skráning
  • Skráðir skólar
  • Sendu okkur
    • Myndir
    • Myndbönd
    • Frásagnir
  • Um GÍS
    • Að taka þátt
    • Ýmislegt gagnlegt
    • Árin
    • Fréttir
    • Hafa samband
  • Umferð.is
  • Heilsuefling
Efst á síðu
  • Þú ert hér:
  • Forsíða
  • Um GÍS
  • Fréttir
ÍSÍ - Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
Engjavegur 6 - 104 Reykjavík
Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi