Efst á síðu
Beint á efnisyfirlit síðunnar

Myndir og frásagnir

12.09.2018

Göngum í skólann verkefnið fer vel af stað en alls 71 skólar eru skráðir til þátttöku í verkefninu.

Víkurskóli og Brekkuskóli hafa báðir sett myndir á heimasíðuna en þátttökuskólar eru einmitt hvattir til þess að senda myndir, frásagnir og/eða myndbönd af verkefninu.

 Brekkuskóli hefur einnig sett inn frásögn af því sem þau hafa gert í tilefni af verkefninu. Þau byrja skólaárið greinilega vel með fjölbreyttri útiveru nemenda en eftirfarandi er frásögn sem kom frá þeim: "Byrjuðum september á einstaklega vel heppnuðum útivistardegi þar sem nemendur nutu náttúrunnar í sól og yndislegu veðri. Eldri nemendur gátu valið um að ganga á Súlur, fara í hjólaferð og sund eða að ganga um bæinn og skoða útilistaverkin í bænum undir handleiðslu listakennara. Í september erum við með útiíþróttir og þá kynnum við fyrir þeim svæði sem hægt er að leika sér á í nágrenninu. Förum vel yfir umferðareglur með yngstu nemendur og sýnum þeim öruggustu leiðir í kringum skólann".

Brekkuskóli nýtir nærumhverfið og hugmyndarflugið til þess að virkja börnin til göngu sem er til fyrirmyndar. Við vonumst til þess að fá fleiri skemmtilegar frásagnir og myndir af því sem fer fram í skólunum í tilefni af verkefninu.

Til baka

Fréttasafn

Fréttasafn

2024

Ágúst, September, Október, Nóvember.

2023

Ágúst, September, Október.

2022

Janúar, Ágúst, September, Október.

2021

Ágúst, September, Október, Desember.

2020

September, Október.

2019

Ágúst, September, Október, Desember.

2018

Ágúst, September, Október.

2017

Ágúst, September, Október, Nóvember.

2016

Ágúst, September, Október.

2015

Júlí, Ágúst, September, Október.

Heim
  • Forsíða
  • Skráning
  • Skráðir skólar
  • Sendu okkur
    • Myndir
    • Myndbönd
    • Frásagnir
  • Um GÍS
    • Að taka þátt
    • Ýmislegt gagnlegt
    • Árin
    • Fréttir
    • Hafa samband
  • Umferð.is
  • Heilsuefling
Efst á síðu
  • Þú ert hér:
  • Forsíða
  • Um GÍS
  • Fréttir
ÍSÍ - Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
Engjavegur 6 - 104 Reykjavík
Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi