Efst á síðu
Beint á efnisyfirlit síðunnar

Þátttaka 2023

04.10.2023

Árlega taka milljónir barna þátt í Göngum í skólann verkefninu í yfir  fjörutíu löndum víðs vega um heim. Markmið verkefnisins eru meðal annars að, hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Stuðla að heilbrigðum lífsstíll, Minnka umferð við skóla og draga þar með úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum ásamt betra. Stuðla að vitundarvakningu um virkan ferðamáta og umhverfismál.

Í ár tóku 83 grunnskólar þátt sem er met. Það er virkilega ánægjulegt hvað skólastjórnendur hafa tekið Göngum í skólann verkefninu vel. 

Nokkrir skólar hafa sent inn myndefni og/eða frásagnir frá viðburðum og verkefnum sem tengdust Göngum í skólann 2023 og það er gaman að sjá hve margir skólar tengja verkefnið við kennslustundir eins og til dæmis stærðfræði. Myndefni og frásagnir má sjá undir  flipanum "Sendu okkur" á heimasíðu Göngum í skólann.

Að verkefni loknu fá allir þátttökuskólar þakkarbréf ásamt viðurkenningarskjali og gjöf til skólanns sem nýtist i leik eða starfi. Þeir skólar sem sendu inn aukalega efni, myndir, myndbönd eða frásagnir fá að vanda smá auka glaðning.

Mynd með frétt var tekin þegar Grunnskóli Hornafjarðar afhenti Gullskóinn tveimur bekkjum þar sem nemendur voru duglegastir að nýta sér virkan ferðamáta.

Til baka

Fréttasafn

Fréttasafn

2024

Ágúst, September, Október, Nóvember.

2023

Ágúst, September, Október.

2022

Janúar, Ágúst, September, Október.

2021

Ágúst, September, Október, Desember.

2020

September, Október.

2019

Ágúst, September, Október, Desember.

2018

Ágúst, September, Október.

2017

Ágúst, September, Október, Nóvember.

2016

Ágúst, September, Október.

2015

Júlí, Ágúst, September, Október.

Heim
  • Forsíða
  • Skráning
  • Skráðir skólar
  • Sendu okkur
    • Myndir
    • Myndbönd
    • Frásagnir
  • Um GÍS
    • Að taka þátt
    • Ýmislegt gagnlegt
    • Árin
    • Fréttir
    • Hafa samband
  • Umferð.is
  • Heilsuefling
Efst á síðu
  • Þú ert hér:
  • Forsíða
  • Um GÍS
  • Fréttir
ÍSÍ - Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
Engjavegur 6 - 104 Reykjavík
Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi