Efst á síðu
Beint á efnisyfirlit síðunnar

Göngum í skólann var sett í Vestmannaeyjum

03.09.2025

Göngum í skólann var formlega sett á tröppum Barnaskóla Vestmannaeyja, föstudaginn 5. september 2025. Skóladagurinn í grunnskólum Vestmannaeyja (Hamarsskóla og Barnaskóla Vestmannaeyja) hófst með vinaverkefnum þar nemendur í Hamarsskóla heimsóttu vinabekki í Barnaskólanum og 1. og 10. bekkur, 2. og 9. bekkur, 3. og 8. bekkur, 4. og 7. bekkur, og 5. og 6. bekkur unnu saman að litlum verkefnum.

Anna Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri Barnaskólans, bauð gesti og nemendur velkomna og að því loknu ávarpaði Arndís Bára Ingimarsdóttir, lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum, nemendahópinn og hvatti þau til að ganga eða hjóla í skólann og fara varlega. Að lokum hélt Ragnhildur Skúladóttir, sviðsstjóri fræðslu- og almenningssviðs ÍSÍ, stutt ávarp og afhenti skólanum Göngum í skólann fána, bolta og fleira að gjöf.

Verkefnið var gengið af stað með þátttöku allra nemenda grunnskólanna sem gengu fylktu liði að íþróttamiðstöðinni þar sem við tók Ólympíuhlaup ÍSÍ. Þar var í boði að hlaupa 2 km, 3,1 km og 5 km.

Öll umgjörð og utanumhald skólanna var til fyrirmyndar og það var gaman að sjá hversu margt starfsfólk hljóp með og nemendur tóku virkan þátt. Að hlaupi loknu var boðið upp á pylsuveislu. Veðrið í Eyjum var frábært sem gerði daginn einstaklega eftirminnilegan og skemmtilegan fyrir alla þátttakendur.

Allir grunnskólar landsins geta tekið þátt í Göngum í skólann en hér má finna skráningarsíðu verkefnisins.

Þeir sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, mennta- og barnamálaráðuneytið, embætti landlæknis, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Samgöngustofa og Landssamtökin Heimili og skóli. Göngum í skólann og Ólympíuhlaup ÍSÍ er styrkt af Íþróttaviku Evrópu - European week of sport (European Commission)

Allar upplýsingar um Ólympíuhlaup ÍSÍ má svo finna hér.

Myndir með frétt

Til baka

Fréttasafn

Fréttasafn

2025

Ágúst, September.

2024

Ágúst, September, Október, Nóvember.

2023

Ágúst, September, Október.

2022

Janúar, Ágúst, September, Október.

2021

Ágúst, September, Október, Desember.

2020

September, Október.

2019

Ágúst, September, Október, Desember.

2018

Ágúst, September, Október.

2017

Ágúst, September, Október, Nóvember.

2016

Ágúst, September, Október.

2015

Júlí, Ágúst, September, Október.

Heim
  • Forsíða
  • Skráning
  • Skráðir skólar
  • Sendu okkur
    • Myndir
    • Myndbönd
    • Frásagnir
  • Um GÍS
    • Að taka þátt
    • Ýmislegt gagnlegt
    • Árin
    • Fréttir
    • Hafa samband
  • Umferð.is
  • Heilsuefling
Efst á síðu
  • Þú ert hér:
  • Forsíða
  • Um GÍS
  • Fréttir
ÍSÍ - Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
Engjavegur 6 - 104 Reykjavík
Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi