Efst á síðu
Beint á efnisyfirlit síðunnar

Þátttökuverðlaun Göngum í skólann 2025

07.10.2025

Það margborgar sig að skrá grunnskólann og taka þátt í Göngum í skólann. Þrír skólar voru dregnir út eftir að verkefninu lauk og hlaut hver þeirra 150.000 kr. gjafabréf frá Altis. skóalóð. Skólarnir sem voru dregnir út í ár eru Akurskóli, Flúðaskóli og Grunnskóli Grundarfjarðar. Gjafabréfið má nota til að kaupa íþróttabúnað fyrir íþróttakennslu eða til afnota á skólalóð.

Það er alltaf gaman að frá frásagnir frá skólum og gaman að segja frá því að í Grunnskóla Grundarfjarðar var haldin innanhúskeppni milli bekkja yfir tveggja vikna tímabil á meðan Göngum í skólann stóð yfir. Heildarþátttaka nemenda nam 86%. Mesta þátttakan var í 7. bekk sem náði 96%, en 10. bekkur fylgdi fast á hæla með 95% þátttöku. Það er ljóst að gjafabréfið mun nýtast vel fyrir nemendur og kennara í Grunnskóla Grundarfjarðar.

Í Akurskóla verður verðlaunaafhending vegna þátttöku í bæði Göngum í skólann og Ólympíuhlaupi ÍSÍ haldin mánudaginn 13. október, sem er skemmtileg viðurkenning á góðu starfi nemenda og starfsfólks. Flestir skólar taka einnig þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ en það er hægt að hlaupa fram að áramótum.

Flúðaskóli tók virkan þátt í Göngum í skólann með fjölbreyttri dagskrá sem innihélt meðal annars göngu- og útivist, sköpunarverkefni með krít og vatnslitum, fjallgöngu á Miðfell, fjöruferð og útihlaup í íþróttum.

Skólar í dreifbýli þar sem börn þurfa að notast við skólabíla hafa aðlagað verkefnið að sínum þörfum sem er virkilega jákvætt og skemmtilegt. Það þarf stundum að hugsa út fyrir boxið. Leik- og Grunnskólinn Hofgarði lokar skólalóðinni í september og allir nemendur mega koma með reiðhjólin með sér í skólann. Þar er tekinn smá tími af skólastarfi til að leyfa börnunum að hjóla í öruggu umhverfi.

Allir skólarnir sýndu mikinn metnað í þátttöku sinni og nýttu tækifærið til að hvetja nemendur til að ganga eða velja annan virkan ferðamáta til og frá skóla. Með því var lögð áhersla á að gera daglega hreyfingu og útiveru að jákvæðum og sjálfsögðum hluta af skóladeginum. Margir skólar nýttu verkefnið jafnframt sem vettvang til að færa íþróttakennslu og aðra hreyfingu út í náttúruna, þar sem útivist og heilsuefling fara saman á skemmtilegan og skapandi hátt. Þátttaka grunnskóla víðsvegar um land sýnir mikilvægi verkefnisins og markar skref í átt að bættri lýðheilsu og varanlegum jákvæðum venjum í daglegu lífi barna og ungmenna.

ÍSÍ þakkar öllum þeim skólum sem tóku þátt og óskar verðlaunaskólunum til hamingju með glæsilegan árangur.
Göngum í skólann er verkefni á vegum ÍSÍ og er styrkt að hluta frá Framvkæmdarstjórn Evrópusambandsins (European Commission) undir formerkjum Íþróttaviku Evrópu.





 


Myndir með frétt

Til baka

Fréttasafn

Fréttasafn

2025

Ágúst, September, Október.

2024

Ágúst, September, Október, Nóvember.

2023

Ágúst, September, Október.

2022

Janúar, Ágúst, September, Október.

2021

Ágúst, September, Október, Desember.

2020

September, Október.

2019

Ágúst, September, Október, Desember.

2018

Ágúst, September, Október.

2017

Ágúst, September, Október, Nóvember.

2016

Ágúst, September, Október.

2015

Júlí, Ágúst, September, Október.

Heim
  • Forsíða
  • Skráning
  • Skráðir skólar
  • Sendu okkur
    • Myndir
    • Myndbönd
    • Frásagnir
  • Um GÍS
    • Að taka þátt
    • Ýmislegt gagnlegt
    • Árin
    • Fréttir
    • Hafa samband
  • Umferð.is
  • Heilsuefling
Efst á síðu
  • Þú ert hér:
  • Forsíða
  • Um GÍS
  • Fréttir
ÍSÍ - Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
Engjavegur 6 - 104 Reykjavík
Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi