Göngum í skólann 2026 verður sett föstudaginn 4. september í Árskóla á Sauðárkróki. Formlega hefst verkefnið ekki fyrr en 9. september og hér er því verið að taka smá forskot á sæluna. Þetta er í tuttugasta sinn sem verkefnið er sett hér á landi. Tekur þinn skóli ekki örugglega þátt í ár? Hér má skrá sig
Þrír skólar verða dregnir út í lok átaks og fá þeir hver um sig inneign uppá 150.000 kr. frá Altis fyrir vörum sem nýtast í íþróttakennslu eða í frímínútum.
Notum virkan ferðamáta!
Göngum í skólann er viðburður undir Íþróttaviku Evrópu og styrkt af European Commission #BeActive, Embætti landlæknis, Samgöngustofu, Ríkislögreglustjóra, Heimili og skóla, Mennta- og barnamálaráðuneytinu og Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu.