17.09.2026 Gott skólanesti þarf hvorki að vera flókið né tímafrekt. Á vefnum Gott og einfalt má finna 25 einfaldar hugmyndir í nestisboxið sem hægt er að laga að smekk, aldri, matarlyst og þörfum hvers og eins.
Meðal hugmynda eru trefjaríkt brauð með áleggi og grænmeti, heilkornavefjur, hafraskonsur, harðsoðin egg, falafel, skyr með höfrum og ávöxtum, bananapönnukökur og heilhveitipasta. Með því að blanda saman heilkornavörum, próteinríkum mat, ávöxtum og grænmeti er hægt að skapa fjölbreytt nesti á einfaldan hátt.
Ekki þarf að fylla nestisboxið af mörgum ólíkum matartegundum. Einfalt nesti sem barnið borðar er betra en flókið nesti sem kemur aftur heim. Gott getur verið að leyfa barninu að taka þátt í valinu og prófa sig áfram með mismunandi samsetningar.
Mikilvægt er að fylgja reglum skólans um fæðuofnæmi og laga stærð og lögun matarins að aldri og færni barnsins.
Hér má finna einfaldar hugmyndir í nestisboxið á Gott og einfalt