Göngum í skólann hefur undanfarinn mánuð hvatt nemendur, kennara og foreldra til að velja virkan ferðamáta í og úr skóla.
Verkefnið miðar að því að efla daglega hreyfingu barna og ungmenna, auka öryggi þeirra í umferðinni og vekja athygli á umhverfisvænum samgöngum. Með því að ganga, hjóla, hlaupa eða velja aðra virka ferðamáta fá nemendur og aðrir tækifæri til að bæta bæði heilsu og vellíðan.
Lokadagur verkefnisins, 7. október, er jafnframt alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn 2026.
Ef þinn skóli tók þátt en er ekki enn búinn að skrá þátttöku er hægt að gera það hér
Samstarfs og styrktaraðilar Göngum í skólann eru European Commission #BeActive, Samgöngustofa, Heimili og skóli, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Embætti landlæknis, Ríkislögreglustjóri og Sysavarnarfélagið Landsbjörg.