Verkefninu Göngum í skólann er nú lokið fyrir árið 2026 og alls tóku 55 grunnskólar þátt að þessu sinni. Markmið verkefnisins er að hvetja börn og foreldra til að nýta sér virkan og öruggan ferðamáta til og frá skóla með áherslu á hreyfingu, umhverfisvitund og lýðheilsu.
Það er gaman að segja frá því að í ár fagnaði Göngum í skólann tuttugasta árinu. Íslandi hóf þáttöku árið 2007 og frá upphafi hafa fjölmargir skólar tekið þátt ár eftir ár og þannig skapað sterka hefð fyrir daglegri hreyfingu í skólanum. Sérstaklega má nefna Grenivíkurskóla og Grundaskóla á Akranesi, sem hafa tekið þátt öll árin. Þá hafa einnig Álftanesskóli, Brekkuskóli Akureyri, Glerárskóli, Laugarnesskóli, Hofstaðaskóli og Síðuskóli sýnt einstakan metnað með nær samfelldri þátttöku frá byrjun.
Þátttaka í ár er heldur minni en í fyrra þegar 64 skólar tóku þátt og 2024 þegar 72 skólar tóku þátt. Þeir grunnskólar sem tóku þátt eiga hins vegar hrós skilið, því þátttaka þeirra endurspeglar aukna meðvitund um mikilvægi hreyfingar og heilsueflingar í daglegu lífi barnanna. Einnig er ánægjulegt að sjá hvernig skólastjórnendur og kennarar nýta verkefnið í kennslu nemenda og styðja þannig við lífsstíl og lýðheilsu barna og ungmenna.
Göngum í skólann fellur afar vel að þeim markmiðum sem fjölmargir skólar vinna nú þegar að, eins og Heilsueflandi grunnskóli og geta nýtt verkefnið í kennslustundum og sjálfbærnimenntun. Það er von ÍSÍ að fleiri skólar taki þátt á næsta ári.
Föstudaginn 9. október nk. verða 3 þátttökuskólar dregnir út og fá 150.000 króna gjafabréf frá Altis. Gjafabréfin má nýta til kaupa á búnaði fyrir skólalóð eða íþróttasal.
Starfsfólk ÍSÍ mun hafa samband við vinningshafa og nöfn skólanna verða jafnframt birt á heimasíðu verkefnisins.
Göngum í skólann er alþjóðlegt verkefni sem nær til milljóna barna um allan heim. Með því að auka færni barna til að ferðast gangandi á öruggan hátt og efla vitund þeirra um ávinning reglulegrar hreyfingar stuðlar verkefnið að heilbrigðum lífsstíl, minni umferðarþunga við skóla og aukinni umhverfisvitund. Allt í þágu betra samfélags og lýðheilsu.
ÍSÍ þakkar samstarfsaðilum verkefnisins fyrir en þeir eru Samgöngustofa, Ríkislögreglustjóri, mennta- og barnamálaráðuneytið, Heimili og skóli. embætti landlæknis, Slysavarnarfélagið Landsbjörg og European Commission #BeActive. Göngum í skólann er viðburður undir Íþróttaviku Evrópu.
Í gegnum árin höfum við fengið margar frábærar myndir og frásagnir. Í tilefni tímamótana er við hæfi að setja inn nokkrar skemmtilegar myndir.
Takk fyrir þátttökuna og merkið við 1. september 2027.