Föstudaginn 25. september tók Kirkjubæjarskóli á Síðu þátt í Skólaíþróttadegi Evrópu (European School Sport Day) undir yfirskriftinni Be Active Together.
Vegna veðurs fór dagskráin fram í íþróttahúsinu þar sem nemendur tóku þátt í fjölbreyttum hreyfi- og samvinnuverkefnum. Meðal verkefna voru Íþróttaeyjar og Fjögur íþróttahorn, þar sem reyndi bæði á hreyfingu, samvinnu og þekkingu á mismunandi íþróttagreinum.
Mikil hreyfing og góð samvinna einkenndu daginn og ríkti góð stemning meðal nemenda.
Dagurinn er helgaður hreyfingu og íþróttum í skólastarfi og er haldinn víða um Evrópu.
Nánari upplýsingar um European School Sport Day má finna á vef ESSD.