Göngum í skólann hefur fest sig í sessi í starfi Borgaskóla. Verkefnið hefst með því að nemendur og kennarar koma saman á skólalóðinni áður en allur hópurinn gengur saman um hverfið. Á meðan á átakinu stendur fylgjast kennarar með ferðamáta nemenda og í lokin kemur í ljós hvaða árgangur hefur náð bestum árangri.
Það er ekki aðeins heiðurinn í húfi því þrír efstu árgangarnir fá viðurkenningu og sigurárgangurinn fær sérstakan farandbikar afhentan af skólastjórnendum.
Í Borgaskóla er Göngum í skólann tengt við umhverfi, umferð og hreyfingu. Skólinn er Heilsueflandi grunnskóli og Grænfánaskóli og er verkefnið liður í því starfi.
Borgaskóli var einn þriggja skóla sem dregnir voru út til þátttökuverðlauna í Göngum í skólann 2026 og hlýtur skólinn 150.000 kr. gjafabréf frá Altis.